Innlent

Víð­áttu­mikil lægð fyrir sunnan land

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Búast má við vætu víða á landinu í dag.
Búast má við vætu víða á landinu í dag. Vísir/Vilhelm

Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land beinir norðaustan- og austanátt til landsmanna. Víða fimm til þrettán metrar á sekúndu í dag en syðst á landinu má búast við allhvössum vindstrengjum fram yfir hádegi. Lægðinni fylgir einhver rigning í flestum landshlutum en sennipartinn styttir upp um landið suðvestanvert og hiti verður sex til þrettán stig.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar segir að á morgun muni lægðardrag teygja sig yfir landið. Áttin verður því breytileg, víða gola eða kaldi og rigning eða súld, en lítilsháttar skúrir á Suður- og Vesturlandi. Seinnipartinn bætir heldur í vind. Hiti sjö til fimmtán stig, mildast suðaustantil.

Á laugardag er svo útlit fyrir hæga breytilega átt með dálítilli vætu norðan- og austanlands. Þurru veðri á Suður- og Suðvesturlandi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Breytileg átt 3-10 m/s og víða dálitlar skúrir, en rigning eða súld norðaustantil og við norðurströndina. Hiti 7 til 14 stig, mildast suðaustanlands.

Á laugardag:

Vestlæg eða breytileg átt 3-8. Dálitlar skúrir norðan- og austantil, annars þurrt að mestu. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:

Norðaustan 3-10 og bjart með köflum, en dálítil væta austanlands og á Vestfjörðum. Hiti 6 til 13 stig, mildast sunnantil. Vaxandi norðanátt austast á landinu um kvöldið.

Á mánudag:

Norðvestlæg átt og væta með köflum, en þurrt sunnan- og vestanlands. Kólnar heldur.

Á þriðjudag:

Vestan- og norðvestanátt og bjartviðri, en þykknar upp vestantil. Hiti 8 til 15 stig að deginum.

Á miðvikudag:

Suðlæg eða breytileg átt og lítilsháttar væta, en bjart að mestu um landið austanvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×