Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Bjarki Sigurðsson skrifar 3. september 2026 16:40 Danskir lögreglumenn að störfum árið 2025. Getty/Dursun Aydemir Lögregluyfirvöld í Danmörku rannsaka nú hvernig bjarga megi gögnum um dæmda og meinta glæpamenn sem var eytt fyrir mistök. Á meðan málið er rannsakað fær enginn skotvopnaleyfi í Danmörku og starfsstaðir þar sem unnið er með börnum geta ekki ráðið nýtt starfsfólk.
Í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra Danmerkur er málið sagt grafalvarlegt. Um sé að ræða upplýsingar um glæpi sem menn hafa verið dæmdir fyrir eða eru grunaðir um. Unnið sé hörðum höndum að því að endurheimta gögnin. Þau eru meðal annars notuð við mat á því hvort einstaklingur geti fengið útgefið skotvopnaleyfi eða fengið leyfi til að vinna með börnum. Á meðan unnið er að endurheimtinni hafa báðar leyfisveitingar verið settar á ís. Í grein DR segir að gögnin eyðist alla jafna sjálfkrafa. Til að mynda eyðist gögn um óskilorðsbundna fangelsisdóma oftast eftir tíu ár. Dómar fyrir grófari brot haldist þar þó lengur. Upplýsingarnar sem var óvart eytt eru frá því fyrir árið 2011. Því má gera ráð fyrir að dóma fyrir alvarleg brot sé að ræða. Nicolai Wammen, dómsmálaráðherra Danmerkur, segir DR að allar líkur séu á því að hægt verði að endurheimta gögnin. Þegar búið er að gera það krefst hann þess að lögreglan rannsaki hvernig slíkt gat gerst og hvort einhverjir hafi fengið útgefin leyfi sem þeir hefðu ekki átt að fá.
Danmörk Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Fleiri fréttir Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Sjá meira