Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Rakel Sveinsdóttir skrifar 29. september 2026 07:02 Við eigum það til að finnast við gera hlutina svo miklu betur sjálf að við viljum frekar sjá um að gera hlutina sjálf en að aðrir geri það. Þrátt fyrir að vera jafnvel útkeyrð. Dæmið um uppþvottavélina er til dæmis nokkuð þekkt víða. Vísir/Getty Hversu oft er það sem við hugsum með okkur: Æi, best ég geri þetta bara sjálf/ur? Kannski eitthvað lítið í eldhúsinu sem við erum þó margsinnis búin að ræða við krakkana um að gera.
Eða eitthvað í vinnunni sem við treystum okkur einfaldlega betur til að gera vel miðað við aðra. Og svo framvegis. Oft finnst okkur jafnvel betra að gera hlutina bara sjálf því það er svo tímafrekt að útskýra fyrir öðrum. Eða við teljum aðra einfaldlega ekki ráða jafn vel við verkefnin. En erum við í alvöru að hugsa þetta vegna þess að okkur finnst við betri en aðrir? Eða er skýringin kannski önnur? Sálfræðin er nefnilega með nokkuð góðar skýringar á þessu. Því í raun snýst þetta ekkert um að við séum svona erfið, teljum okkur betri eða séum svona stjórnsöm. Á ensku er oft talað um sjálfhverfa skekkju (e. egocentric bias) sem skýrist í raun á þessu: Heilinn okkar mælir eðlilega allan heiminn út frá okkur sjálfum. Þetta gerir það að verkum að við eigum það til að ofmeta okkar eigið sjónarhorn, vegna þess að við þekkjum okkar eigin hugsanir, rökstuðning og áætlanir. Þegar kemur að öðru fólki þekkjum við eðlilega ekki allt hið innra – eins og hugsanir, rökstuðning eða áætlanir. En við sjáum útkomuna, lokaafurðina og í raun lítið annað (til dæmis ekki pælinguna á bak við það hvernig aðrir gera hlutina). Psychology Today hefur skrifað um þetta en líka fyrirbæri sem kalla má samhljóða álit (e. false consensus effect). Þetta fyrirbæri fær okkur til að halda að okkar eigin leið til að hugsa eða framkvæma hluti sé miklu útbreiddari og eðlilegri en hún í raun er. Þegar aðrir velja aðra leið finnst okkur þeirra aðferð því oft skrýtin eða gölluð. Enn eitt atriðið þessu tengt er okkar eigin stjórnunarblekking (e. illusion of control). Sérfræðingar hjá American Psychological Association (APA) hafa bent á hvernig fólk upplifir oft mjög sterka þörf fyrir að stýra umhverfi sínu: Þegar við gerum hlutina sjálf fáum við tafarlausa tilfinningu fyrir stjórn, sem minnkar kvíða og óvissu í heilanum – taugakerfinu finnst einfaldlega öruggara að við séum við stýrið. Aha! Nú erum við þá farin að skilja hvers vegna við gerum þetta. En hvernig getum við breytt þessu? Þrenn góð ráð til að sleppa tökunum: 1. Spurðu um lokaútkomuna – ekki aðferðina. Uppþvottavélin er gott dæmi. Skiptir máli hvernig í hana er raðað til þess að leirtauið verði hreint? Ef aðrir röðuðu öðruvísi í vélina en þú, en hún mun samt skila leirtauinu hreinu, láttu þar við sitja. 2. Aðrir ómögulegir? Reyndu að átta þig á því þegar þér finnst aðrir vera óskynsamir eða hægfara. Því þarna ertu mjög líklega undir áhrifum sjálfhverfu skekkjunnar (e. egocentric bias). 3. Leyfðu öðrum að gera „nógu gott“. Fullkomnunarárátta í bland við stjórnunarþörf er fljótasta leiðin til örmögnunar. „Nógu gott“ hjá öðrum gefur þér dýrmætan tíma og hvíld. Gott að muna: Þegar þú tekur allt yfir af því að „aðrir gera þetta ekki eins vel“ ertu í raun að hlaða á þig óþarfa álagi og streitu. Með því að grípa alltaf fram fyrir hendurnar á öðrum dregurðu líka úr líkunum á að fólkið í kringum þig læri eða fái tækifæri til að finna sína eigin góðu lausn.
Sjálfið okkar Geðheilbrigði Mest lesið Pattra með pæju-padelmót Lífið Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Fleiri fréttir Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Sjá meira