Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. september 2026 20:01 Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur hefur rýnt í niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við ESB jókst meira á landsbyggðinni heldur en í borginni frá alþingiskosningum 2024. Að sögn stjórnmálafræðings hafði það ekki úrslitaáhrif á niðurstöðuna en áhuginn sé þó athyglisverður. Það veki einnig athygli hve mikið fylgi Já hafi að endingu haft á landsbyggðinni. „
Kjarninn í þessu er sá að ef við berum þetta saman við síðustu alþingiskosningar þá hækkaði kjörsókn um 2,3 prósent á landsvísu en töluvert meira á landsbyggðinni heldur en í Reykjavík, mest jókst hún í Norðausturkjördæmi um 3,5 prósent,“ segir Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur í samtali við Vísi. Hafsteinn stóð eins og frægt er orðið vaktina í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins og áttaði sig fyrstur manna á væntanlegum sigri Nei-sinna. Nei fékk 52,8 prósent atkvæða en Já 47,16 prósent. Hafsteinn segir að í heildina hafi kjörsókn aukist um 2,8 prósent á landsbyggðinni samanborið við 1,7 prósent í Reykjavík. „Það er mjög áhugaverð þróun og bendir til sérstaks áhuga landsbyggðarkjördæmanna á þessari kosningu. Þó erum við bara að tala um einhver nokkur hundruð atkvæði sem bætast við ef kjörsókn væri jöfn á öllu landinu. Þetta er því ekki líklegt til að hafa áhrif á úrslit kosninganna. Ástæða þess er að þrátt fyrir að kjörsóknin hafi aukist svona mikið að þá hafi Já-ið samt náð fjörutíu prósenta fylgi í landsbyggðarkjördæmunum.“ Erfitt sé að setja fingur á hvað valdi en ljóst sé að um grundvallarmál sé að ræða á landsbyggðinni. Þó verði að taka fram að jöfn kjörsókn hefði einungis skilað Já-inu 0,1 prósent meira fylgi. Hvað veldur aukinni kjörsókn á landsbyggðinni? „Það er mjög góð spurning. Þetta er auðvitað grundvallarmál. Segjum að við hefðum ákveðið að ganga í Evrópusambandið að undangengum tvennum kosningum þá væri það grundvallarbreyting. Það þarf ekki að koma á óvart að þetta ýti við fólki og ég held þetta hafi sérstaklega mikil áhrif á landsbyggðinni þar sem stórar atvinnugreinar eiga rætur, sjávarútvegur og svo framvegis og ljóst að sjávarútvegurinn var upp til hópa mjög andsnúinn viðræðum.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira