Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. september 2026 18:53 Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir ýmis stór og erfið mál vera á dagskrá þingsins í vetur. Vísir/Ívar Fannar Ríkisstjórnin er í þrengri stöðu eftir sumarið en hún var fyrir að mati stjórnmálafræðings. Margt bendi til þess að stefni í átakamikinn þingvetur, meðal annars umræðan um Bókun 35 og vendingar í heimsmálum. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu breyti stöðu Íslands gagnvart EES-samningnum og ekki þurfi mikið til að samningurinn rakni upp og verði að engu.
Sunna Sæmundsdóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir ræddu við Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, um komandi þingvetur við þingsetningu í dag. Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að neðan. Eiríkur sagði að það blasi við að ríkisstjórnin sé í þrengri stöðu en hún var fyrir sumarið. Bæði sé efnahagsástandið ekki eins og hún hafi lagt upp með sem og hafi niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar áhrif. „Auðvitað eru erfiðleikar til staðar og erfiðleikar gera samstarf flóknara,“ sagði Eiríkur. „EES-samningurinn er ekki náttúrulögmál“ Auk þess séu stór og erfið mál í vændum á komandi þingvetri. Þar á meðal er hin umtalaða Bókun 35 sem eigi það til að taka yfir alla umræðuna á þingi. „Evrópusambandsaðildarvígínan virðist ætla að færast yfir á Bókun 35,“ segir Eiríkur. Sjá einnig: Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Formlega muni umræðan um Bókun 35 ekki snúast um EES-samninginn en „það er hann sem er eigi að síður undir,“ sagði Eiríkur. Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi breytt stöðu Íslands gagnvart EES-samningum. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi menn talað um EES-samninginn sem óhagganlegan fasta en svo sé ekki. „EES-samningurinn er ekki náttúrulögmál,“ sagði Eiríkur. „Fyrst að Ísland mun ekki sækja um aðild að Evrópusambandinu verður ekki hægt að leysa þetta mál í aðildarsamningi eins og planið virðist hafa verið.“ Nú þegar afstaða Íslands liggi skýrt fyrir sé líklegt að Evrópusambandið krefji Ísland að nýju um að uppfylla þær skuldbindingar sem það hafi undirgengist. Ef Ísland uppfylli ekki þær skuldbindingar muni EES-samningurinn ekki gilda til langframa og ekki þurfi mikið til að setja „dómínóið af stað.“ „Ef málið fellur þá er ferlið þannig að Evrópusambandið tekur málið til skoðunar. Reglan er sú að það á að segja upp þeim hluta EES-samningsins sem gerðin nær til. En þar sem gerðin [Bókun 35] er grundvallargerð raknar allur EES-samninguinn upp og verður í rauninni að engu. Það er eiginlega endastöð þess að uppfylla ekki þessa skuldbindingu sem við höfum undirgengist. Hvort menn kunni að finna einhverjar aðrar leiðir í einhverjum samningum við Evrópusambandið sé ég ekki í fljótu bragði,“ sagði Eiríkur. Það sem gerist í millitíðinni ráði för Auk Evrópumálanna sé ýmislegt utan landsteinanna sem muni hafa afgerandi áhrif á þingveturinn að mati Eiríks. Svo sem átök víða í heiminum og myndbirting Bandaríkjaforseta af korti þar sem Ísland, auk Grænlands og allrar Norður-Ameríku, er þakið fánalitum Bandaríkjanna sem vakti ugg meðal margra. „Við getum lagt upp með alls konar áætlanir en svo er það sem gerist í millitíðinni sem ræður för,“ sagði Eiríkur.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Bókun 35 Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Sjá meira