Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2026 23:46 Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra hafa miklar áhyggjur af fjárhagsstöðu Seltjarnarnesbæjar. Vísir/Vilhelm Minnihluti Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra í Seltjarnarnesbæ lýsti í dag yfir þungum áhyggjum vegna fjárhagsstöðu bæjarins. Uppgjör bæjarins fyrir fyrstu sex mánuði ársins var kynnt á bæjarstjórnarfundi en minnihlutinn segir í bókun að það sýni „alvarlega og versnandi“ fjárhagsstöðu.
Þessi slæma fjárhagsstaða kalli á tafarlaus og markviss viðbrögð. Í bókuninni, sem send var á fjölmiðla í kvöld, segir að meðal helstu vandræða sveitarfélagsins megi nefna viðvarandi tap á rekstri. A-hluti hafi verið rekinn með 521 milljón króna tapi á áðurnefndum sex mánuðum. Samanlagt sé tap A og B-hluta 411 milljónir króna og sé þegar orðið meira en tapið allt síðasta ár. Þá segir að frávikið frá fjárhagsáætlun sé um 400 milljónir, „til hins verra“. Annað atriði sem nefnt er í bókuninni er að veltufé frá rekstri A-hluta sé neikvætt um 78 milljónir. Á síðasta ári hafi það verið jákvætt um 89 milljónir og þetta sé alvarleg vísbending um getu sveitarfélagsins til að standa við skuldbindingar. Lausafjársstaða sveitarfélagsins er þar að auki veik. Í bókuninni segir að skammtímaeigni standi ekki undir skammtímaskuldum. Þá segir einnig að skuldir samstæðunnar hafi aukist um 880 milljónir króna á sex mánuðum og séu nú um 9,5 milljarðar króna. Á sama tíma hafi eigið fé A-hluta rýrnað um 521 milljón og sé nú 1.056 milljónir. „Þessi staða kemur því miður ekki á óvart, við höfum varað við þessari þróun síðustu ár og fjölluðum um alvarlega stöðu í kosningabaráttu vorsins, þó verður að segjast að staðan er enn verri en við gerðum ráð fyrir,“ segir í bókuninni. „Það að fjárhagsstaðan sé orðin svona slæm eftir fyrstu sex mánuði ársins, án sýnilegra viðbragða meirihlutans, verður að teljast á ábyrgð bæjarstjóra sem hefði átt að hringja viðvörunarbjöllum og upplýsa bæjarstjórn um stöðuna.“ Kallað er eftir því að farið verði strax í endurskoðun á fjárhagsáætlun, rekstri málaflokka og áætluðum fjárfestingum. Minnihlutinn segist tilbúinn til að vinna af heilindum að því að snúa stöðunni. Hinsv vegar muni þau standa vörð um grunnþjónustu við börn og ungmenni og aðra viðkvæma hópa. „Við getum ekki breytt því sem komið er, en við berum ábyrgð á því hvernig brugðist verður við.“ Undir bókunina skrifa þau Kristinn Ólafsson og Sigurþóra Bergsdóttir.
Seltjarnarnes Sveitarstjórnarmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira