Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. september 2026 06:45 Íbúar og ferðamenn sóttust í vatnið í París í Frakklandi. epa Meðalhitastigið í ágúst var það hæsta sem mælst hefur, jafn hátt og í júlí 2023, samkvæmt loftslagsþjónustu Evrópusambandsins. Nýafstaðið sumar var það hlýjasta í Vestur-Evrópu.
Meðalhitastig mánaðarins var 1,65 gráðum yfir meðaltali fyrir iðnbyltingu og þar með yfir 1,5 gráðu markinu sem þjóðir heims reyna að fara ekki yfir til að koma í veg fyrir verstu afleiðingar loftslagsbreytinga. Þetta nýja met má rekja til samblöndu af loftslagsbreytingum og vaxandi áhrifum El niño-veðurfyrirbrigðisins, samkvæmt umfjöllun BBC. El niño er hluti af náttúrulegum breytileika í ríkjandi vindátt og sjávarhita í Kyrrahafinu í hitabeltinu við miðbaug. Aukin hlýindi veðurfyrirbrigðisins leggjast ofan á þá manngerðu hlýnun vegna mikillar losunar manna á gróðurhúsalofttegundum. Hitabylgja eftir hitabylgju reið yfir Evrópu í sumar og var hitastigið oft og tíðum um og yfir fjörutíu gráðum. Liðið sumar er það hlýjasta í Vestur-Evrópu og var hlýrra en sumarið 2003 þegar mannskæðar hitabylgjur riðu yfir. Sjá nánar: Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 „Sönnunargögnin eru óhrekjanleg: þetta er vaxandi verðmiði á jarðefnaeldsneytisfíkn mannkyns og þeirri alþjóðlegu loftslagskreppu sem hún ýtir undir,“ er haft eftir Simon Stiell, yfirmanni loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum, í umfjöllun BBC. Sömuleiðis var sumarið það heitasta frá því að mælingar hófust árið 1884. Það olli álagi á sjúkrahús, hafði áhrif á matvælaframleiðslu, ýtti undir gróðurelda og þurrka auk þess að kosta tugþúsundir mannslífa að sögn Calir Barnes, rannsakanda í veðuröfgum við Imperial College í Lundúnum.
Loftslagsmál Veður Jarðefnaeldsneyti Bretland Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Tengdar fréttir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Þurrkur og ítrekaðar hitabylgjur í sumar hafa leitt til einhverrar verstu vínuppskeru í Frakklandi í áratugi. Einna verst er ástandið í Champagne-héraði þar sem útlit er fyrir að framleiðsla á kampavíni dragist saman um helming á milli ára. 8. september 2026 10:44 Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Alls hafa 330 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda sem geisað hafa í vikunni í Frakklandi og á Spáni. 27. júlí 2026 00:05 Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Talið er að yfir 2.700 hafi látist af völdum hita í Englandi og Wales í kjölfar hitabylgju sem þar geisaði í maí og júní. Rauðar veðurviðvaranir vegna hitans voru gefnar út í lok júní en talið er að flest dauðsföll hafi átt sér stað í júnímánuði þegar hiti náði tæpum 37 stigum. 13. júlí 2026 09:47 Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira
Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Þurrkur og ítrekaðar hitabylgjur í sumar hafa leitt til einhverrar verstu vínuppskeru í Frakklandi í áratugi. Einna verst er ástandið í Champagne-héraði þar sem útlit er fyrir að framleiðsla á kampavíni dragist saman um helming á milli ára. 8. september 2026 10:44
Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Alls hafa 330 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda sem geisað hafa í vikunni í Frakklandi og á Spáni. 27. júlí 2026 00:05
Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Talið er að yfir 2.700 hafi látist af völdum hita í Englandi og Wales í kjölfar hitabylgju sem þar geisaði í maí og júní. Rauðar veðurviðvaranir vegna hitans voru gefnar út í lok júní en talið er að flest dauðsföll hafi átt sér stað í júnímánuði þegar hiti náði tæpum 37 stigum. 13. júlí 2026 09:47