Jarðsyngur sinn besta vin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. september 2026 10:03 Steinn Ármann og Davíð Þór í gervi Radíusbræðra. Útför Steins Ármanns Magnússonar leikara verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, heimabæ leikarans, klukkan 13 í dag. Davíð Þór Jónsson, prestur og besti vinur Steins, jarðsyngur. Útförinni verður streymt á Vísi.
Steinn Ármann andaðist á heimili sínu í Hafnarfirði föstudaginn 21. ágúst á 62. aldursári. Steinn var annar helmingur gríntvíeykisins Radíusbræðra en Davíð Þór var hinn helmingurinn. Báðir voru þeir Hafnfirðingar og höfðu starfað saman í hljómsveitinni Kátum piltum. Davíð Þór segir frá útförinni á Facebook. „Kæru vinir. Útför Steins Ármanns verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 10. september kl. 13. Streymt verður frá athöfninni á visir.is,“ segir Davíð. „Mig langar að benda ykkur, sem viljið kveðja Stein, á að hafa tímann fyrir ykkur. Það er viðbúið að það verði fjölmennt og erfitt að finna bílastæði; hugsanlega verður nauðsynlegt að ganga nokkurn spöl frá bílnum að kirkjunni. Hafið það í huga þegar þið leggið af stað, reynið jafnvel að sameinast í bíla eða koma með öðrum hætti en á einkabíl (t.d. væri mjög viðeigandi að koma hjólandi),“ segir Davíð. Ástæðan er sú að Steinn Ármann fór ferða sinna í seinni tíð að langmestu leyti á hjólinu og afgreiddi margan reiðhjólaáhugamanninn í versluninni Erninum í nokkur ár. Útförin hefst klukkan 13 og verður sem fyrr segir í streymi á Vísi.
Hafnarfjörður Tengdar fréttir Var orðinn dagdrykkjumaður Steinn Ármann Magnússon sagði skilið við áfengi fyrir rúmi ári en hann segir það hafa stjórnað lífi sínu. Hann var það langt leiddur að hann íhugaði að gerast útigangsmaður. Líf hans hefur gjörbreyst og nú lítur hann framhaldið björtum augum. 26. september 2015 09:00 Steinn Ármann er látinn Steinn Ármann Magnússon, leikari, er látinn. Hann andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári. 23. ágúst 2026 08:02 Steinn Ármann fimmtugur - brot af því besta Það er fátt betra en hláturskast á sunnudegi. 2. nóvember 2014 13:23 Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Fjöldi fólks hefur ritað fallegar færslur á samfélagsmiðlum eftir að greint var frá andláti Steins Ármanns Magnússonar, leikara og grínista, sem andaðist á heimili sínu á föstudag. Í þessum færslum eru margir mannkostir Steins Ármanns taldir upp, einn þeirra er þó tekinn fram oftar en aðrir: Það er hvað hann var fyndinn. 23. ágúst 2026 15:11 Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ „Engin orð. Bara sorg,“ skrifar Séra Davíð Þór Jónsson um fregnir af andláti Radíusbróður síns, Steins Ármanns Magnússonar. Hann hefur ekki fleiri orð um dánarfregnina í stuttri færslu á Facebook að sinni, en fjöldi fólks vottar honum samúð sína í athugasemdakerfinu. 23. ágúst 2026 10:16 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Var orðinn dagdrykkjumaður Steinn Ármann Magnússon sagði skilið við áfengi fyrir rúmi ári en hann segir það hafa stjórnað lífi sínu. Hann var það langt leiddur að hann íhugaði að gerast útigangsmaður. Líf hans hefur gjörbreyst og nú lítur hann framhaldið björtum augum. 26. september 2015 09:00
Steinn Ármann er látinn Steinn Ármann Magnússon, leikari, er látinn. Hann andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári. 23. ágúst 2026 08:02
Steinn Ármann fimmtugur - brot af því besta Það er fátt betra en hláturskast á sunnudegi. 2. nóvember 2014 13:23
Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Fjöldi fólks hefur ritað fallegar færslur á samfélagsmiðlum eftir að greint var frá andláti Steins Ármanns Magnússonar, leikara og grínista, sem andaðist á heimili sínu á föstudag. Í þessum færslum eru margir mannkostir Steins Ármanns taldir upp, einn þeirra er þó tekinn fram oftar en aðrir: Það er hvað hann var fyndinn. 23. ágúst 2026 15:11
Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ „Engin orð. Bara sorg,“ skrifar Séra Davíð Þór Jónsson um fregnir af andláti Radíusbróður síns, Steins Ármanns Magnússonar. Hann hefur ekki fleiri orð um dánarfregnina í stuttri færslu á Facebook að sinni, en fjöldi fólks vottar honum samúð sína í athugasemdakerfinu. 23. ágúst 2026 10:16