„Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. september 2026 15:10 Una Torfa og Svandís Svavars ræddu saman um ýmislegt í þættinum. Mæðgurnar Una Torfadóttir og Svandís Svavarsdóttir rifjuðu upp saman þegar Una greindist með heilaæxli árið 2020, í miðjum kórónuveirufaraldri og Svandís þurfti að greina frá því opinberlega vegna stöðu sinnar sem heilbrigðisráðherra. Atburðarásin hafi verið galin og Una þurft að slíta sig frá krabbameininu þegar hún hóf tónlistarferil sinn.
Tónlistarkonan Una Torfa og Svandís Svavars, fyrrverandi ráðherra og stjórnmálakona, ræddu saman í fjórða þætti samtalsseríunnar Milli vina. Í þáttunum ræða tveir einstaklingar, sem tengjast nánum böndum, sín á milli á persónulegu nótunum. Una og Svandís fóru um víðan völl í þættinum og rifjuðu meðal annars upp þegar Una greindist með heilaæxli og Svandís þurfti að taka sér leyfi frá störfum sínum sem heilbrigðisráðherra. „Þegar þú veikist þarna sumarið 2020, þá er ég akkúrat í þeirri stöðu að vera heilbrigðisráðherra í Covid og var stöðugt að gefa út nýjar reglugerðir um það hvort fólk mætti vera tíu eða tuttugu hér og þar, sem manni finnst núna eins og bara hafi verið einhver vísindaskáldsaga,“ segir Svandís í þættinum. „Það var alveg ofboðslega mikið álag og mikið í gangi. Svo komu þessi veikindi þín og þá varð ég að kúpla mig frá. Ég varð einfaldlega að draga mig út úr vinnunni minni, þó ég gerði það ekkert mjög lengi,“ bætir hún við. „Eitt er að vera ráðherra á einhverjum venjulegum tíma, en á þessum tíma þá þurfti ég að gera grein fyrir því. Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein. Og við gerðum það saman, ég man eftir því.“ „Pældu í því hvað það er galið,“ skýtur Una þá inn í. „Þetta er mjög galið, að geta ekki einu sinni fengið að vera í friði með þetta,“ bætir Svandís við. „Þá þurftum við líka að drífa okkur að vera búin að segja öllu okkar fólki fyrst áður en þetta færi í blöðin,“ segir Una. Þurfti að slíta sig frá Elsku stelpum og krabbameininu „Þegar þú svo kemur fram sem listamaður þá ert þú þessi dóttir,“ segir Svandís. „Þetta er það sem er til í gögnunum. Það er Elsku stelpur, Skrekksatriðið og krabbameinið. Ég þurfti svolítið að hafa fyrir því að slíta mig frá þessu tvennu,“ segir Una. Una hlaut verðlaun fyrir söng ársins í dægurlagatónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2023 og hlaut Magnús Kjartansson heiðursverðlaun sama kvöld. „Og nokkrum dögum síðar þá hitti ég hann í biðröð í Leifsstöð. Við vorum á leiðinni til útlanda, ég og pabbi þinn. Og þá sagði hann: „Nú þarft þú að fara að venjast því að vera mamma hennar Unu Torfa en ekki það að hún sé dóttir þín“.“
Milli vina Krabbamein Fjölskyldumál Sýn Vinstri græn Tengdar fréttir Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Kormákur og Skjöldu rifjuðu upp þegar þeir fengu í jólagjöf frá eiginkonum sínum óvissuferð á Hótel Rangá. Um nóttina var mikið kampavín drukkið og pörin komin í svo mikið stuð að þau ákváðu að gifta sig. 2. september 2026 16:29 Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Vinkonurnar og leikkonurnar Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir unnu saman í fjölda ára við gamanþáttagerð og rifjuðu upp spennuþrungnar lokatökurnar á síðustu seríu Venjulegs fólks í samtalsþættinum Milli vina. Upprifjunin tók á þær stöllur og klökknaði Vala Kristín. 25. ágúst 2026 16:10 Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur. 19. ágúst 2026 14:41 Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira
Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Kormákur og Skjöldu rifjuðu upp þegar þeir fengu í jólagjöf frá eiginkonum sínum óvissuferð á Hótel Rangá. Um nóttina var mikið kampavín drukkið og pörin komin í svo mikið stuð að þau ákváðu að gifta sig. 2. september 2026 16:29
Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Vinkonurnar og leikkonurnar Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir unnu saman í fjölda ára við gamanþáttagerð og rifjuðu upp spennuþrungnar lokatökurnar á síðustu seríu Venjulegs fólks í samtalsþættinum Milli vina. Upprifjunin tók á þær stöllur og klökknaði Vala Kristín. 25. ágúst 2026 16:10
Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur. 19. ágúst 2026 14:41