Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Valur Páll Eiríksson skrifar 10. september 2026 21:18 Ég er hættur, sagði Kartal á blaðamannafundi í kvöld. Þú ert það ekki sagði forsetinn í yfirlýsingu í kjölfarið. Bunyamin Celik/Anadolu via Getty Images Það gengur á ýmsu hjá Fenebahce eftir 1-1 jafntefli liðsins við Roma í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Þjálfarinn hætti en forsetinn neitar að taka uppsögninni.
Ismail Kartal, þjálfari Fenerbahce, sagði upp í beinni á blaðamannafundi eftir 1-1 jafntefli við Roma í Meistaradeild Evrópu í kvöld. „Ég ætla að segja starfi mínu lausu á meðan leiðin er enn greið og ég geri það með því skilyrði að ég snúi aldrei aftur,“ sagði Kartal á fundinum. Kartal tók við liðinu í sumar, og það í fjórða sinn en hann hafði áður stýrt Fenerbahce 2014-15, 2022 og 2023-24. Hann var ráðinn af Aziz Yildirim sem hlaut kjör sem forseti í sumar en sá segist ekki ætla að taka uppsögninni gildri. Başkanımız Aziz Yıldırım: “Teknik Direktörümüz İsmail Kartal, görevinin başındadır.”🔗 https://t.co/0i65ena1yz pic.twitter.com/2QJLUW5wSH— Fenerbahçe SK (@Fenerbahce) September 10, 2026 „Ismail Kartal mun halda áfram störfum þar til ég yfirgef félagið,“ sagði Yildirim. „Hann er bara rétt að byrja á sinni vegferð,“ er haft eftir honum í yfirlýsingu sem Fenerbahce birti í kvöld. Hvað verður er óljóst en allt þykir stefna til þess að Kartal haldi ekki áfram í starfi. Fenebahce hefur lagt mikið í liðið en í leikmannahópi liðsins eru stór nöfn á við markvörðinn Ederson, Milan Skriniar, Romelu Lukaku, Mason Greenwood og N‘Golo Kanté. 🚨🏴 This is the moment Fenerbahçe player Archie Brown was told that Ismail Kartal resigned from his position as coach! 🎙️"What do you mean he resigned? What? As coach? I didn't know about this." 😳 pic.twitter.com/Iq8hZO7pDE— EuroFoot (@eurofootcom) September 10, 2026 Archie Brown, sem skoraði jöfnunarmark Fenebahce í leik kvöldsins við Roma, hafði ekki hugmynd um að stjórinn væri hættur þegar hann var tekinn tali eftir leik. Fenerbahce hefur farið illa af stað í tyrknesku deildinni og er aðeins með sex stig eftir fjóra leiki í níunda sæti.
Tyrkneski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sjá meira