Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Jón Þór Stefánsson skrifar 12. september 2026 10:48 Mæðgurnar Lea og Denise fluttu til Campobasso meðan þær voru í vitnaverndinni. Kona sem bar vitni gegn föður sínum í einu frægasta dómsmáli Ítalíu á síðustu árum, sem varðaði morðið á móður hennar, er látin. Konan, sem hét Denise Cosco, er talin hafa framið sjálfsvíg. Móðir hennar Lea Garofalo, var myrt árið 2009, þá 35 ára, jafngömul og Denise var þegar hún lést núna í vikunni. Lea Garofalo er einskonar táknmynd baráttu Ítala gegn mafíunni. Árið 2002 gerðist hún uppljóstari fyrir yfirvöld, fór í vitnavernd, og veitti lögreglu upplýsingar um 'Ndrangheta-glæpahópinn, sem starfar fyrst og fremst í Kalabríu, syðsta héraði meginlands Ítalíu. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjall 1717, Píetasímann 552-2218 sem opinn er allan sólarhringinn, upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700 og netspjall Heilsuveru. Tengslin við 'Ndrangheta voru sterk í báðum ættum Denise. Þrátt fyrir það virðast móðurætt (Garofalo) og föðurætt (Cosco) hennar hafa eldað grátt silfur sín á milli. Á meðal þess sem Lea bar vitni um var að mágur hennar, bróðir barnsföður hennar Carlo Cosco, hefði drepið bróður hennar, Floriano Garofalo. Raunar gaf hún til kynna að Carlo hafi einnig tekið þátt í tilræðinu. Lea Garofalo er ein táknmynd baráttunnar gegn mafíunni á Ítalíu.Getty Denise fór með móður sinni í vitnaverndina. Þær fengu báðar nýtt nafn og settust að á nýjum stað. En árið 2009 ákvað Lea að þær myndu hætta í verndinni. Svo virðist sem að í kjölfarið hafi Carlo Cosco platað Leu á sinn fund í Mílanó, líklega undir því yfirskyni að þau hafi ætlað að ræða framtíð dóttur sinnar, Denise. Lea var myrt af hópi manna og lík hennar brennt. Carlo sagði Denise að móðir hennar hefði skilið hana eftir og flutt til Ástralíu til að hefja nýtt líf. Hún mun hafa átt erfitt með að trúa þeirri sögu. Carlo, og fimm aðrir, hlutu árið 2012 lífstíðardóma fyrir ódæðið. Í Réttarhöldunum bar Denise vitni gegn föður sínum. Efra dómstig átti seinna eftir að milda dóm eins mannsins og sýkna annan. Lífið eftir þetta allt saman mun hafa verið Leu erfitt. Hún mun hafa glímt við andleg veikindi og fíknivanda. Þá hafi hún aftur átt í sambandi við föður sinn, sem situr enn í fangelsi. Ítalía Erlend sakamál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Sjá meira
Lea Garofalo er einskonar táknmynd baráttu Ítala gegn mafíunni. Árið 2002 gerðist hún uppljóstari fyrir yfirvöld, fór í vitnavernd, og veitti lögreglu upplýsingar um 'Ndrangheta-glæpahópinn, sem starfar fyrst og fremst í Kalabríu, syðsta héraði meginlands Ítalíu. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjall 1717, Píetasímann 552-2218 sem opinn er allan sólarhringinn, upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700 og netspjall Heilsuveru. Tengslin við 'Ndrangheta voru sterk í báðum ættum Denise. Þrátt fyrir það virðast móðurætt (Garofalo) og föðurætt (Cosco) hennar hafa eldað grátt silfur sín á milli. Á meðal þess sem Lea bar vitni um var að mágur hennar, bróðir barnsföður hennar Carlo Cosco, hefði drepið bróður hennar, Floriano Garofalo. Raunar gaf hún til kynna að Carlo hafi einnig tekið þátt í tilræðinu. Lea Garofalo er ein táknmynd baráttunnar gegn mafíunni á Ítalíu.Getty Denise fór með móður sinni í vitnaverndina. Þær fengu báðar nýtt nafn og settust að á nýjum stað. En árið 2009 ákvað Lea að þær myndu hætta í verndinni. Svo virðist sem að í kjölfarið hafi Carlo Cosco platað Leu á sinn fund í Mílanó, líklega undir því yfirskyni að þau hafi ætlað að ræða framtíð dóttur sinnar, Denise. Lea var myrt af hópi manna og lík hennar brennt. Carlo sagði Denise að móðir hennar hefði skilið hana eftir og flutt til Ástralíu til að hefja nýtt líf. Hún mun hafa átt erfitt með að trúa þeirri sögu. Carlo, og fimm aðrir, hlutu árið 2012 lífstíðardóma fyrir ódæðið. Í Réttarhöldunum bar Denise vitni gegn föður sínum. Efra dómstig átti seinna eftir að milda dóm eins mannsins og sýkna annan. Lífið eftir þetta allt saman mun hafa verið Leu erfitt. Hún mun hafa glímt við andleg veikindi og fíknivanda. Þá hafi hún aftur átt í sambandi við föður sinn, sem situr enn í fangelsi.
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjall 1717, Píetasímann 552-2218 sem opinn er allan sólarhringinn, upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700 og netspjall Heilsuveru.
Ítalía Erlend sakamál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Sjá meira