Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. september 2026 23:10 Stór hluti seðlanna fannst í nokkrum umslögum í farangri þeirra ákærðu. Getty Maður og kona hafa hlotið fimm og þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir peningaþvætti hér á landi. Bæði eru þau erlendir ríkisborgarar sem fyrir dómara og lögreglu gátu ekki sammælst um hvort þau ættu í ástarsambandi eða ekki.
Maðurinn og konan voru handtekin þann 7. mars 2023 um borð í bíl í Reykjanesbæ. Ökumaður bílsins var talinn aka undir áhrifum fíkniefna og voru þau öll færð upp á lögreglustöð. Við leit fundust tæplega níu þúsund evrur í handtösku konunnar í reiðufé og átta þúsund evrur til viðbótar í farangri hennar. Maðurinn var þá með sjö þúsund evrur í seðlum í farangri sínum. Þegar konan var yfirheyrð af lögreglu sagði hún reiðuféð vera sparnað hennar og mannsins en þau hygðust gifta sig. Hún hefði sjálf lagt fyrir til að fara til tannlæknis í Tyrklandi. Einnig væri reiðuféð vegna vinnu hennar við skipulagningu viðburða. Þau hefðu komið saman til að fagna afmæli hennar en misst af flugferðinni heim þar sem maðurinn hefði týnt vegabréfinu sínu. Maðurinn sagði hins vegar að hann ætti heitkonu heima í Bretlandi en væri með konunni, sem væri kærasta hans, í afmælisferð á Íslandi. Hann var ekki viss hversu há fjárhæðin var sem hann hafði meðferðis en hann hefði upphaflega komið með á milli 22 og 23 þúsund evrur sem voru sparifé til að dekra við kærustuna. Ekki lengur kærustupar Fyrir dómi breytti maðurinn hins vegar sögunni og sagðist ekki hafa átt í ástarsambandi við konuna heldur væru þau vinir til átta ára. Þá hefði hann átt alla peningana, bæði sem fundust í farangri hans og konunnar þar sem hann hafði selt Rolex-úr og fengið greitt með seðlum. Konan breytti einnig frásögn sinni og sagði þau ekki kærustupar heldur vini. Hún tók undir með manninum og sagði að hann hefði átt alla peningana sem lögreglan handlagði nema þá sem fundust í handtöskunni hennar. Í síma mannsins fundust þá skilaboð frá deginum sem hann var handtekinn og þar bað hann ónefndan mann um að „koma með peningana“. Þeir sömdu um að hittast á veitingastaðnum Duck and Rose í Reykjavík. Einnig fundust skilaboð þar sem maðurinn átti í fíkniefnaviðskiptum. Frásögnin ekki trúverðug Dómarinn taldi að töluvert ósamræmi væri í frásögnum þeirra beggja. Í fyrsta lagi gáfu þau ekki skýr svör um hvert samband þeirra væri á þessum tíma, sögðust fyrst vera í sambandi en síðar meir bara vinir. Þá var einnig óljóst hver ætti peningana í raun, maðurinn sagði fyrir dómi að hann ætti þá alla en konan að hún ætti peningana sem fundust í handtöskunni hennar. Þá sögðu þau mismunandi sögur af því hvernig þau hefðu fengið peningana. Fyrst sagði maðurinn að þetta væru laun hans sem tónlistarmaður og sparnaður en síðar að hann hefði selt Rolex-úr. Konan sagði fyrst að þetta væri sparnaður en einnig vegna vinnu og síðar meir að þetta væri sameiginlegt fé þeirra beggja. Ef rétt reyndist að maðurinn ætti peninginn hefði hann haft árslaun sín meðferðis og taldi dómarinn það ólíklegt að hann myndi ferðast með slíka upphæð í reiðufé. Dómarinn fullyrðir því að umræddir fjármunir hafi verið ávinningur af refsiverðum brotum. Maðurinn hlaut fimm mánaða skilorðsbundinn dóm og konan þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm. Evrurnar voru allar gerðar upptækar ásamt vöxtum og verðbólgu og þurftu þau bæði að greiða um eina og hálfa milljón í málsvarslaun og þóknun verjenda sinna.
Dómsmál Reykjanesbær Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira