Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Boði Logason skrifar 16. september 2026 13:31 Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, er að fara af stað með nýja þáttaröð í lok næsta mánaðar. Þáttur númer 100 fer í loftið fyrir áramót. Vísir/Vilhelm Ný þáttaröð af sjónvarpsþáttunum Gulli byggir er á leiðinni á Sýn+ og er óhætt að segja að verkefnin verði af öllum stærðum og gerðum að þessu sinni.
Gulli Helga, umsjónarmaður þáttanna, segir að sem fyrr sé fjölbreytnin í fyrirrúmi. Það verður meðal annars fylgst með lagfæringum á veitingastað þar sem framkvæmdir fóru áttatíu prósent fram úr kostnaðaráætlun. Þá rís einingahús fyrir ofan Skógarböðin á Akureyri og ættingjar og vinir taka höndum saman við að gera upp bóndabæ að utan. Verkefnin teygja sig einnig út fyrir landsteinana. Nýja þáttaröðin fer í loftið 25. október.Sýn „Við gröfum fyrir sundlaug á Ítalíu, fylgjumst með fjölskyldu sem byggði sex einbýlishús í Grindavík árið 2019 en þurfti, eins og svo margir Grindvíkingar, að finna sér nýtt heimili. Við breytum húsi í Garðabæ og endum svo á stærsta verkefninu – að reisa heila vindmyllu,“ segir hann. Hundraðasti þátturinn framundan Nýja þáttaröðin er sú tíunda sem hann gerir fyrir Stöð 2 og Sýn en áður gerði hann tvær þáttaraðir fyrir RÚV, árin 2011 og 2012. Alls eru þáttaraðirnar því orðnar tólf og stór tímamót framundan. „Það sem ég hef alltaf reynt að gera er að hafa þættina eins fjölbreytta og mögulegt er og sýna alls konar framkvæmdir og verkefni. Nú eru þáttaraðirnar orðnar tólf talsins og síðasti þátturinn í ár verður tímamótaþáttur sá hundraðasti í röðinni,“ segir Gulli. Eftir svona marga þætti verði sífellt mikilvægara að finna ólík og áhugaverð verkefni til að fylgjast með. „Eftir hundrað þætti þarf verkefnavalið svo sannarlega að vera fjölbreytt en aðalatriðið hefur alltaf verið það sama, að hafa gaman af þessu.“ Hér fyrir neðan má sjá stiklu úr nýjustu þáttaröð Gulli byggir á Sýn+.
Sýn Gulli byggir Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Fleiri fréttir Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Sjá meira