Innlent

Ráða nýjan for­stjóra þvert á ósk fram­kvæmda­stjóra

Eiður Þór Árnason skrifar
Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, nýr forstjóri SÁÁ. 
Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, nýr forstjóri SÁÁ.  Aðsend/samsett

Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri SÁÁ. Ráðningin kemur í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fráfarandi forstjóra.

Óánægja er með þá ákvörðun meðal starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ og sögðu framkvæmdastjóri lækninga og fagstjóri á Vík upp störfum í kjölfarið. Báðar hafa farið fram á að Ragnheiður verði fengin aftur í forstjórastöðuna.

Greint er frá ráðningunni í tilkynningu frá SÁÁ. Baldvina Ýr er hjúkrunarfræðingur með meistaragráðu í hjúkrunarfræði og diplómanám í opinberri stjórnsýslu. Hún kemur til SÁÁ frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem hún er framkvæmdastjóri heilsugæslu- og forvarnasviðs.

„Baldvina Ýr hefur 16 ára reynslu af stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Í núverandi starfi ber hún rekstrarlega ábyrgð á sviði sem nær yfir tíu starfsstöðvar og rúmlega 500 starfsmenn. Sviðið þjónar rúmlega 35.000 íbúum á Suðurlandi,“ segir í tilkynningunni.

Markmiðið að skapa stöðuleika

„Við erum virkilega ánægð með að fá Baldvinu Ýr til starfa hjá SÁÁ á þessum tímamótum. Hún býr yfir reynslu af stjórnun, sterkum faglegum bakgrunni og þekkingu á flóknum rekstri í heilbrigðisþjónustu. Ráðning hennar er mikilvægt skref í því að skapa stöðugleika, byggja upp traust og styrkja samstarfið innan samtakanna,“ er haft eftir Önnu Hildi Hildibrandsdóttur, formanni SÁÁ.

Baldvina Ýr er sögð hafa starfað í tíu ár sem deildarstjóri hjúkrunar á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði. Þar áður hafi hún starfað hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, fyrst sem hjúkrunarfræðingur og síðar sem deildarstjóri á hand- og lyflækningadeild. Þá hafi hún jafnframt setið í stjórnum Landssambands heilbrigðisstofnana og Félags stjórnenda í öldrunarþjónustu.

„Ég tek við starfi forstjóra SÁÁ af virðingu fyrir því mikilvæga starfi sem unnið er innan samtakanna. Fyrstu verkefni mín verða að hlusta, kynnast starfseminni og eiga samtal við starfsfólk og aðra lykilaðila. Markmiðið er að skapa stöðugleika, styrkja samstarfið og byggja áfram á þeirri miklu þekkingu og reynslu sem býr innan SÁÁ,“ er haft eftir Baldvinu Ýr í tilkynningunni.

Þóra Björk Ingólfsdóttir, fráfarandi fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, og Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga, hafa sakað stjórn SÁÁ um óeðlileg afskipti af faglegu meðferðarstarfi og fullyrt að hún hafi gert Ragnheiði ömögulegt að sinna sínum forstjórastörfum áfram með fullnægjandi hætti. Valgerður hefur gefið til kynna að hún væri tilbúin að snúa aftur til starfa ef aðstæður breytast. 

Formaður SÁÁ hefur hafnað ásökunum um óeðlileg afskipti stjórnar. Landlæknir hefur lýst yfir áhyggjum af stöðu mála hjá SÁÁ. 

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×