Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Árni Sæberg skrifar 16. september 2026 18:00 Hluti verjenda í Dettifossmálinu, til vinstri, og Herra Lína, til hægri. Vísir Eldri maður frá Albaníu bar vitni í Dettifossmálinu svokallaða í gegnum fjarfundarbúnað við aðalmeðferð málsins síðdegis. Viðstaddir gátu ekki haldið í sér hlátri yfir vitnisburði hans. Hann spurði til að mynda hvers vegna verið væri að ræða sakamál á Íslandi við hann, þar sem nóg væri af sakamálum í Albaníu. Þá kom teiknimyndapersónan Herra Lína við sögu.
Maðurinn, sem heitir Kristian, bar vitni að ósk verjanda Kastriots Pepaj, sem grunaður er um að hafa skipulagt innflutning 14 lítra af amfetamínbasa ásamt Sævari Hilmarssyni. Tveir skipverjar á Dettifossi eru einnig ákærðir fyrir aðkomu að innflutningnum. Kristian var fenginn til að bera vitni vegna yfirlýsingar hans, sem liggur fyrir í gögnum málsins, þar sem hann útskýrir hvers vegna hann hringdi í Kastriot úr þýsku símanúmeri. Símtal það var borið undir Kastriot þegar hann gaf skýrslu fyrir dómi, þar sem að það barst úr þýsku númeri en skipverjarnir tveir sóttu amfetamínbasann til Bremerhaven í Þýskalandi. Hann sagði það hafa tengst mögulegum fasteignaviðskiptum í Albaníu. Vitnið á undan tók upp tólið Mjög erfiðlega gekk að ná sambandi við Kristian og brugðið var á það ráð að fá annað vitni á undan honum. Það vitni var albanskur vinur Kastriots. Að loknum vitnisburði hans var reynt aftur að ná í Kristian og það tókst ekki fyrr en vitnið á undan tók upp símann og hringdi í Kristian. Þá kveikti hann loks á myndavél og hljóðnema tölvu sinnar. Hann hóf vitnisburð sinn á því að segja að hann skildi ekkert í því að vera orðinn vitni í sakamáli á Íslandi og fékk sér í kjölfarið smók, sem vakti nokkra kátínu viðstaddra. Nóg af sakamálum í Albaníu Verjandi Kastriots spurði hann þá hvernig hann þekkti til Kastriots og eiginkonu hans og hvers vegna hann hefði hringt í Kastriot. Kristian sagðist virða fjölskyldu Kastriots mjög mikið og hann hefði hringt í hann til að bjóða honum hús í Albaníu til kaups. Hann hefði fengið símanúmer Kastriots frá þriðja manni og hringt í hann einu sinni. Hann hefði reynt að hringja í hann aftur en þá hefði Kastriot verið kominn í fangelsi á Íslandi. Hann hafi hringt úr þýsku símanúmeri þar sem hann hefði um nokkurra ára skeið starfað sem bifvélavirki þar í landi. Hann hefði aldrei komist í kast við lögin og því skildi hann ekki af hverju væri verið að spyrja hann út í þessa hluti. „Ég skil ekkert af hverju þið eruð að spyrja mig út í sakamál á Íslandi, það er nóg af sakamálum í Albaníu.“ Þurfti að fletta símanúmerinu upp í bók Þá var hann beðinn um að gefa upp símanúmerið sem hann notaði til að hringja í Kastriot. Þá stóð hann upp, sem vakti furðu dómara og sækjanda, sneri aftur með bók í hönd, sleikti fingur og hóf að fletta í bókinni. Þá vakti sækjandi athygli á því að einhver virtist vera inni í herberginu með honum. Hann gekkst við því að fjölskyldumeðlimur hans væri með honum, á sama tíma og hann beindi honum út úr herberginu. Dómari ítrekaði að hann þyrfti að vera í einrúmi á meðan hann bæri vitni. Verjandi sýndi kollega myndskeið af Herra Línu Kristian þuldi símanúmerið þá upp úr bókinni og sækjandi spurði hann hvers vegna hann þyrfti að lesa símanúmerið upp úr bók og hvort það væri ekki hans eigið númer. Þá virtist hann fara í uppnám og sagði nokkuð óðamála: „Frú eða fröken, ég hef búið í Þýskalandi síðan 2018, heldur þú að ég, 61 árs maðurinn, geti munað þetta símanúmer? Ég setti það bara í símann og pældi ekki meira í því.“ Þegar Kristian fór með þessa tölu hlógu viðstaddir í dómsal og að mati blaðamanns tók steininn úr þegar hann sá einn verjenda sýna kollega sínum myndskeið af ítölsku teiknimyndafígúrunni Herra Línu. Játa verður að talsverð líkindi voru með talanda Kristians og Herra Línu. Ungur maður færði honum yfirlýsinguna Loks var Kristian spurður út í yfirlýsingu hans, sem er sem áður segir meðal gagna málsins. Hann sagði að ungur maður hefði komið að máli við hann og látið hann fá yfirlýsinguna á ensku. Hann ætti að þýða yfirlýsinguna yfir á albönsku, lesa hana yfir og undirrita. Hann hefði farið með yfirlýsinguna til löggilts skjalaþýðanda, lesið hana yfir og undirritað hana. Ungi maðurinn hefði sagt honum að hann yrði að gera það þar sem hann væri vitni í máli vegna símtals hans og Kastriots. „Ég bið að heilsa dómara, sækjanda og lögmönnum,“ sagði hann að lokum.
Dómsmál Fíkniefnasmygl með Dettifossi Smygl Fíkniefnabrot Tengdar fréttir „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Annar skipverjanna í Dettifossmálinu svokallaða segist hafa fengið áfall þegar hann tók við flöskum af amfetamínbasa í Bremerhaven í Þýskalandi. Honum hafi verið tjáð að um sjö lítra af efnum yrði að ræða en þeir reyndust fjórtán. Í hita leiksins hafi ekki verið um annað að ræða en að taka allar flöskurnar, hann hafi verið að verða seinn í vinnuna. 16. september 2026 11:31 Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Sævar Hilmarsson, sem ákærður er fyrir skipulagningu innflutnings fíkniefna í Dettifossmálinu svokallaða, neitaði að svara spurningum sækjanda málsins þegar hann gaf skýrslu við aðalmeðferð þess. Þess í stað las hann upp yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu og sagðist ekki treysta því að hann fengi réttláta málsmeðferð af hálfu ákæruvaldsins. 16. september 2026 13:43 Þögull sem gröfin um Sævar Annar skipverjanna í Dettifossmálinu svokallaða segist einfaldlega hafa verið að fylgja fyrirmælum þegar hann náði í fjórtán lítra af ætluðum amfetamínbasa í Þýskalandi og flutti til Íslands. Hann vill ekkert tjá sig um samskipti sín við Sævar Hilmarsson, sem grunaður er um að hafa skipulagt innflutninginn. 16. september 2026 13:06 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira
„Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Annar skipverjanna í Dettifossmálinu svokallaða segist hafa fengið áfall þegar hann tók við flöskum af amfetamínbasa í Bremerhaven í Þýskalandi. Honum hafi verið tjáð að um sjö lítra af efnum yrði að ræða en þeir reyndust fjórtán. Í hita leiksins hafi ekki verið um annað að ræða en að taka allar flöskurnar, hann hafi verið að verða seinn í vinnuna. 16. september 2026 11:31
Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Sævar Hilmarsson, sem ákærður er fyrir skipulagningu innflutnings fíkniefna í Dettifossmálinu svokallaða, neitaði að svara spurningum sækjanda málsins þegar hann gaf skýrslu við aðalmeðferð þess. Þess í stað las hann upp yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu og sagðist ekki treysta því að hann fengi réttláta málsmeðferð af hálfu ákæruvaldsins. 16. september 2026 13:43
Þögull sem gröfin um Sævar Annar skipverjanna í Dettifossmálinu svokallaða segist einfaldlega hafa verið að fylgja fyrirmælum þegar hann náði í fjórtán lítra af ætluðum amfetamínbasa í Þýskalandi og flutti til Íslands. Hann vill ekkert tjá sig um samskipti sín við Sævar Hilmarsson, sem grunaður er um að hafa skipulagt innflutninginn. 16. september 2026 13:06