Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Árni Sæberg skrifar 18. september 2026 12:17 Frá vettvangi banaslyssins. Vísir/Anton Brink Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig komna með skýra mynd á banaslys á Krýsuvíkurvegi í lok ágúst. Hún heldur spilunum þétt að sér.
Þrjú ungmenni létust í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt 31. ágúst síðastliðins. Ásdís Haralds, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, stýrir rannsókn málsins. „Rannsókninni miðar vel og vinna lögreglu og Rannsóknarnefndar samgönguslysa stendur enn þá yfir. Við teljum okkur vera komin með ágæta mynd á það hvernig slysið hefur atvikast,“ segir hún. Hún kveðst ekki geta farið nánar út í það hvernig talið er að slysið hafi atvikast. „Ég fer ekki nánar út í slysið á meðan það er í rannsókn. Við munum ekki gefa neitt út fyrr en niðurstaða liggur fyrir. Rannsóknarnefnd samgönguslysa er náttúrulega líka að rannsaka málið. Þannig að við gefum ekki neitt slíkt út, á meðan málið er í rannsókn.“ Ásdís getur þó greint frá því að enginn hafi stöðu sakbornings í málinu og að skýrslutökum vitna sé lokið. Rætt hafi verið við um og yfir tíu manns, sem hafi annað hvort orðið vitni að slysinu eða í það minnsta komið að því. Hvað varðar aðstæður á vettvangi segir hún að niðurstöður rannsóknar þar liggi ekki fyrir. „Tæknideild er að rannsaka vettvanginn og rannsakar allt sem við kemur honum. Við erum bara að bíða eftir niðurstöðum frá þeim, það tekur alltaf einhvern tíma. Ég hef ekki fengið þau gögn í hendur.“
Þrír létust í banaslysi á Krýsuvíkurvegi Samgönguslys Lögreglumál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Sjá meira