Dagskráin í dag: Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar Andri Broddason skrifar 19. september 2026 06:02 Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar með sigri á KR í dag. Vísir/Diego Það er vægast sagt risastór laugardagur á sportrásum Sýnar og nóg af leikjum til að fylgjast með. Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar þegar liðið fer í heimsókn til KR og fimm leikir eru á dagskrá í enska boltanum.
Úrslitin fara að ráðast í Bestu deild karla en Víkingur er með níu stiga forskot á KR í öðru sæti deildarinnar. Með sigri geta því Víkingar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn en ef KR vinnur heldur liðið veikri von um að stela honum af Víkingunum. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu klukkan13:40 á Sýn Sport Ísland. Í neðri hluta Bestu deildar karla verður síðan Akureyrarslagur á laugardagskvöldi og má búast við miklum hita í leiknum enda er hann á besta tíma. Bæði lið eru í harðri fallbaráttu og því mikið undir í leiknum. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er sýndur á Sýn Sport Ísland. Í Bestu deild kvenna fer síðan lokaleikurinn í fyrstu umferð eftir skiptingu deildarinnar þar sem Valur tekur á móti Þór/KA. Bæði lið eru að reyna að forðast fall og þurfa öll þau stig sem þau geta fengið. Leikurinn er sýndur á Sýn Sport Ísland 2 klukkan 15:50. Bestu mörkin munu svo fara yfir allt það helsta sem gerðist í nýliðinni umferð í Bestu deild kvenna. Þátturinn verður sýndur klukkan 18:05 á Sýn Sport Ísland 2. Það verður mikið um að vera í enska boltanum í dag og hefst veislan á leik Tottenham og Aston Villa sem byrjar klukkan 11:10 á Sýn Sport. Svo verður nóg um að vera klukkan 13:50 þar sem leikur Everton og Ipswich verður sýndur á Sýn Sport 5, leikur Newcastle og Hull verður sýndur á Sýn Sport 3 og að lokum verður leikur Brighton og Arsenal sýndur á Sýn Sport 2. Fyrir þá sem vilja fylgjast með öllum þessum leikjum mun DocZone hefjast klukkan 13:40 á Sýn Sport. Þar mun Hjörvar Hafliðason fá til sín góða gesti og fara yfir allt það helsta sem verður í gangi í boltanum bæði á Englandi og á Íslandi. Eftir þáttinn mun svo leikur Nottingham Forest og Coventry vera sýndur klukkan 16:20 á Sýn Sport. Svo um kvöldið munu Laugardagsmörkin hefja göngu sína á Sýn Sport klukkan 18:35 þar sem farið verður yfir allt það helsta sem gerðist í dag. Á Sýn Sport Viaplay verður einn leikur í ensku B-deildinni á dagskrá og einn leikur í þýsku úrvalsdeildinni. Leikur Birmingham og Middlesbrough hefst klukkan 13:50 og leikur Stuttgart og Dortmund hefst klukkan 16:20. Fyrir þá sem vilja ekki horfa á fótbolta verður þriðji hringur BMW PGA Championship-mótsins á DP World-mótaröðinni á Sýn Sport 4 þar sem útsending hefst klukkan 11:00.
Dagskráin í dag Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Sjá meira