Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni Lovísa Arnardóttir skrifar 20. september 2026 20:03 Dómsmálaráðherra segir breytingarnar eiga að draga úr eftirspurn á vændi. Löggjöf frá 2009 hafi ekki virkað sem skyldi. Vísir/Einar Dómsmálaráðuneytið leggur til í nýju frumvarpi að ekki verði lengur hægt að ljúka vændiskaupabrotum með lögreglustjórasekt heldur leiði þau til útgáfu ákæru og dómsmáls. Einnig er lagt til að hámarksrefsing fyrir að kaupa vændi af barni verði hækkuð úr tveggja ára fangelsi í fjögur ár.
Þá er einnig lagt til að ekki skipti máli þótt annar maður greiði eða heiti endurgjaldi fyrir vændi en sá sem það þiggur og að lokum að saknæmisstig vegna vændiskaupa verði bæði ásetningur og gáleysi að því er varðar aldur barns. Frumvarpsdrögin voru birt í samráðsgátt stjórnvalda á föstudag og eru til samráðs til 2. október. Í samráðsgáttinni segir að markmiðið með breytingunum sé að draga úr eftirspurn eftir vændi, þar á meðal barnavændi, draga úr mansali í kynferðislegum tilgangi og taka fast á skipulagðri glæpastarfsemi og kynferðisbrotum. Jafnframt er frumvarpinu ætlað að styrkja refsivernd einstaklinga sem verða fyrir vændi eða vændismansali og endurspegla þá afstöðu löggjafans að ekki sé ásættanlegt að líta á mannslíkamann sem söluvöru. „Almenn og sérstök varnaðaráhrif refsinga verða að vera nægileg til að draga úr kerfisbundinni eftirspurn eftir vændi,“ segir á vef samráðsgáttarinnar. 200 þúsund fyrir fyrsta brot Í drögunum má sjá að frumvarpið var unnið af refsiréttarnefnd. Þar segir að lögunum hafi upprunalega verið breytt árið 2009 og þá farið svokölluð „sænsk leið“ sem refsar kaupanda en ekki seljanda í þeim tilgangi að uppræta vændi. Það hafi þó ekki tekist og að lögregla telji að það sé að mestu drifið áfram af skipulagðri glæpastarfsemi. Grunur sé um að stór hluti þeirra kvenna sem auglýstar eru í vændi sé þolendur mansals. Í frumvarpinu segir að það hafi skapað vanda að hægt sé að ljúka slíkum málum með lögreglustjórasekt og að fjárhæðir sekta hafi verið of lágar. Í samræmi við dómaframkvæmd komi til dæmis fram í fyrirmælum ríkissaksóknara nr. 1/2025 að heimilt sé að sekta fyrir fyrsta brot og að sektin eigi að vera 200 þúsund. Varnaðaráhrifin séu ekki nægileg með þessu og af því tilefni er lagt til að sektir séu afnumdar sem refsing við vændiskaupum. Staðan verður þá sú að annars vegar munu brotin fangelsisrefsingu og hins vegar leiðir af því að ekki verður lengur heimilt að ljúka þeim með lögreglustjórasekt heldur munu þau leiða til útgáfu ákæru og dómsmáls. Sambærilegar breytingar í Svíþjóð Í drögum frumvarpsins segir að sambærilegar breytingar hafi verið gerðar í Svíþjóð í fyrra í þágu sama tilgangs. Þar er einnig nokkuð ítarlega fjallað um þau sjónarmið sem liggja að baki því að refsa fyrir vændiskaup. Fyrst sé það til að draga úr eftirspurn vegna þess að vændi getur verið ein leið til að misnota einstakling kynferðislega. „Oft er vændiskaupandi í reynd að notfæra sér bága félagslega og fjárhagslega stöðu eða bakgrunn vændisseljanda til að kaupa aðgang að líkama hans í kynferðislegum tilgangi. Segja má að oft öðlist vændiskaupendur aðgang að líkama vændisseljenda vegna eymdar og neyðar þeirra. Vændisseljendur eru oft þolendur mansals og/eða annarra aðstæðna. Að minnsta kosti er staðan oft sú að vændiskaupendur láta sér aðstæður vændisseljenda í léttu rúmi liggja, þ. á m. hvort vændisseljendur séu þolendur mansals eða þvingaðir eða neyddir til að taka þátt í vændinu. Í það minnsta kynna vændiskaupendur sér oft ekki nánari aðstæður séu þeir á annað borð ekki kunnugir þeim eða hafi grun um þær,“ segir í drögunum. Oftast neyddar í vændi Þar er einnig vikið að því að þó svo að einhverjir selji vændi af fúsum og frjálsum vilja, og án þess að vera í þeim bágu aðstæðum sem leiða einstaklinga oftast út í vændissölu eða hafa verið þolendur kynferðisbrota í æsku, sem virðist oft vera reyndin með vændisseljendur, verði ekki horft fram hjá því að oft og tíðum er það ekki staðan. „Líta verður til þess hvernig málum er almennt háttað. Þessu tengt verður að horfa til þess að í meirihluta tilvika er vændiskaupandi karl og vændisseljandi kona þótt dæmi séu um annað. Af þeim sökum ber að líta til þess að vændiskaup eru kynbundin brot sem beinast öðru fremur að konum og stúlkum. Vændi tengist því mismunun á grundvelli kyns og getur verið skaðlegt jafnrétti kynjanna,“ segir í drögum frumvarpsins. Því verði að líta til þess valdaójafnvægis sem sé á milli kaupanda og seljanda vændis. Þá verði enn fremur ekki litið fram hjá því að „samþykki“ konu sem er neydd í vændi eða mansal sé lítils eða einskis virði í reynd. Þær geti verið neyddar til að taka á móti mörgum „kúnnum“ á dag og til að taka þátt í kynlífsathöfnum sem þær hafa ekkert eða lítið að segja um. Þá segir einnig að óásættanlegt sé að líkami kvenna eða stúlkna sé álitinn kynferðisleg söluvara og að líta verði til þess hvort að almenn og sérstök varnaðaráhrif séu nægjanleg samkvæmt núgildandi lögum og hvernig sé unnt að auka refsivernd ekki síst barna. Sektargreiðsla ekki í samræmi við sjónarmið Þá segir að núverandi framkvæmd um lágar sektargreiðslur, sem kunni að vera lokið með lögreglustjórasekt, sé ekki í góðu samræmi við framangreind sjónarmið. Frumvarpið byggi því á því að refsing eigi að svara til alvarleika brotsins. Í drögum frumvarpsins segir að ekki verði séð að breytingin hafi í för með sér sérstök útgjöld fyrir ríkissjóð en auknu fjármagni hafi verið varið til lögreglunnar á undanförnum árum vegna skipulagðrar brotastarfsemi, þar á meðal vændis og mansals. Rík áhersla verður, samhliða innleiðingu, á að safna tölfræði með reglubundnum hætti frá lögreglu, Bjarkarhlíð og Stígamótum, auk þess sem samráð verður aukið við samtök sem starfa með þeim einstaklingum sem breytingarnar varða.
Vændi Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Kynbundið ofbeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Stofnandi Rauðu regnhlífarinnar, samtaka kynlífsverkafólks, lýsir áhyggjum af því að lögregla hafi lagt hald á laun mansalsþolenda. Það sé til þess fallið að stefna þeim í frekari skuld. Það sé einnig áhyggjumál að tveimur þolendum hafi verið vísað úr landi enda haldi þeir líklegast áfram að vera vændismansalsþolendur þar. Seljendur vændis veigri sér við að tilkynna ofbeldi til lögreglu. 8. júlí 2026 13:08 Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm vændiskaupendur í júní í tengslum við alþjóðlegar lögregluaðgerðir gegn vændismansali. Málið tengist að hluta kínversku glæpaneti og lögregla segir að kínverskar vændiskonur séu gerðar út hér á landi fyrir um tuttugu þúsund krónur á hálftímann. 6. júlí 2026 21:30 Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Fimmtíu vændiskaupendur náðust á myndskeið og fimm voru handteknir í aðgerðum lögreglu gegn skipulagðri vændisstarfsemi í júní. Aðgerðirnar voru þáttur í alþjóðlegum aðgerðum lögregluyfirvalda í 59 ríkjum. 6. júlí 2026 12:40 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Fleiri fréttir Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira
Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Stofnandi Rauðu regnhlífarinnar, samtaka kynlífsverkafólks, lýsir áhyggjum af því að lögregla hafi lagt hald á laun mansalsþolenda. Það sé til þess fallið að stefna þeim í frekari skuld. Það sé einnig áhyggjumál að tveimur þolendum hafi verið vísað úr landi enda haldi þeir líklegast áfram að vera vændismansalsþolendur þar. Seljendur vændis veigri sér við að tilkynna ofbeldi til lögreglu. 8. júlí 2026 13:08
Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm vændiskaupendur í júní í tengslum við alþjóðlegar lögregluaðgerðir gegn vændismansali. Málið tengist að hluta kínversku glæpaneti og lögregla segir að kínverskar vændiskonur séu gerðar út hér á landi fyrir um tuttugu þúsund krónur á hálftímann. 6. júlí 2026 21:30
Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Fimmtíu vændiskaupendur náðust á myndskeið og fimm voru handteknir í aðgerðum lögreglu gegn skipulagðri vændisstarfsemi í júní. Aðgerðirnar voru þáttur í alþjóðlegum aðgerðum lögregluyfirvalda í 59 ríkjum. 6. júlí 2026 12:40