„Ætlum að halda áfram að vera hugrakkir“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. september 2026 18:36 Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, hvetur sínam enn áfram á hliðarlínunni í leik dagsins. Vísir/Anton Brink „Við vorum gjörsamlega frábærir hérna í fyrri hálfleiknum,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir 5-2 sigur liðsins gegn Stjörnunni í neðri hluta Bestu-deildarinnar í dag.
FH-ingar skorur fjögur mörk í fyrri hálfleik og leiddu 4-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. „Við töluðum um það fyrir leik að Stjarnan er með vel mannað lið og hefur verið á ágætri siglingu undanfarið. Við vissum alveg að við þyrftum að leggja hart að okkur til að komast í góða stöðu á móti þeim og við gerðum það heldur betur. Við vorum frábærir bæði varnar- og sóknarlega og á þessum augnablikum þar sem við vorum að keyra hratt á þá þegar við unnum boltann neðarlega á vellinum. Hugarfarið, viljinn og vinnusemin, plús gæðin sérstaklega í fyrri hálfleik, það var bara magnað að fylgjast með FH-liðinu hérna í fyrri hálfleik,“ sagði Jóhannes Karl. FH-ingar lentu þó í smá brasi í seinni hálfleik og fengu á sig tvö mörk á fyrsta korterinu eftir hlé. Jóhannes segir það mögulega vera fylgifisk þess að vera fjórum mörkum yfir í hálfleik að menn slökkvi aðeins á sér. „Við töluðum nú alveg um það að við ætluðum að byrja seinni hálfleikinn af sama krafti og við byrjuðum fyrri hálfleikinn. Við vissum það líka alveg að Stjarnan myndi koma út og berjast fyrir sínu, það var alveg á hreinu. Þeir settu fleiri menn fram og voru að sparka löngum boltum fram, upp á Emil og upp á Örvar. Þetta féll svolítið með þeim,“ sagði Jóhannes og hélt áfram. „Við vorum kannski aðeins aggressívari í þessum hlutum og héldum línunni okkar aðeins hærra í fyrri hálfleik. En svo þegar leið á seinni hálfleikinn náðum við bara tökum á þessu aftur og hleyptum þeim ekki í þessa stöðu að geta komist svona nálægt markinu okkar. Auðvitað krefst þess gríðarleg orka. Við vorum að reyna að pressa mikið og við vildum ekki falla til baka. Þá þarftu að geta stigið hátt upp á Árna í markinu og þú þarft að fórna einum manni í pressuna á hann. Það krefst gríðarlegrar vinnu að pressa Stjörnuliðið og þeir dældu auðvitað boltum fram. Þá þarftu að geta dílað við Emil Atla og Örvar og fullt af öflugum mönnum þarna frammi hjá þeim. Þetta var pínu erfitt og seinni hálfleikurinn var frekar skrýtinn hvað þetta varðar, en þetta féll líka svolítið með þeim í seinni. Þeir skora tvö mörk sem við hefðum getað gert betur í að verja markið okkar og vrja vítateiginn, en Stjarnan er hörkulið sem getur skorað allskonar mörk. En í heildina héldum við áfram að gera okkar hluti og héldum áfram að pressa. Við kláruðum sóknirnar okkar í seinni kannski ekki nægilega vel eins og við vorum að gera í fyrri og fengum áhlaup á okkur eftir það. En þegar leið á seinni hálfleikinn vorum við aftur orðnir við sjálfir og stjórnuðum því sem við við vildum vera að stýra og stjórna.“ Eftir sigurinn er FH nú sex stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar þrjár umferðir eru eftir af deildinni. Nú tekur hins vegar við langt landsleikjahlé, sem Jóhannes ætlar sér að nýta vel. „Við ætlum bara að halda áfram að vera hugrakkir. Það er aðallega það. Við erum ansi hugrakkir og erum statt og stöðugt að bæta okkur í því. Við erum aggressívir og grimmir og liðsheildin er öflug. Við þurfum að halda okkur í góðu standi í landsleikjahléinu og við þurfum að æfa vel. Við verðum að koma kröftugir inn í fyrsta leik eftir eftir hlé,“ sagði Jóhannes að lokum.
Íslenski boltinn Besta deild karla FH Stjarnan Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Sjá meira