Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. september 2026 11:32 Áhrifavaldurinn Kyana Sue eignaðist fjölda vinkvenna í fjallgöngu um helgina. Instagram Áhrifavaldurinn Kyana Sue flutti til Íslands fyrir sjö árum og hætti í dagvinnunni sinni til þess að ferðast. Hún heldur uppi vinsælli Instagram-síðu þar sem yfir 500 þúsund manns fylgjast með daglegum ævintýrum hennar. Í nýrri færslu frá henni segir hún að það geti verið erfitt að eignast vini á Íslandi en hún dó ekki ráðalaus og stofnaði hópinn Reykjavik Girls Club.
Kyana er gift Viktori Má Snorrasyni matreiðslumanni en þau kynntust fyrir þremur árum. View this post on Instagram A post shared by Kyana Sue Powers • Adventure Travel • Iceland (@kyanasue) Þrátt fyrir að hafa búið hér lengi og hitt mikið af fólki segir Kyana á Instagram að það sé erfitt að eignast vini á Íslandi og í raun hvar sem er þegar maður er orðinn fullorðinn. Hún ákvað því að senda út boðskort á allar stelpur sem hefðu áhuga á því að koma í samfélagsfjallgöngu og lofaði að taka bananabrauð með. Þetta hafi verið svolítið berskjaldandi og hún segist hafa verið smá kvíðin yfir því að enginn myndi mæta. Hún þurfti þó ekki að örvænta því fjöldi kvenna meldaði sig í gönguna og það eina sem hún hafði áhyggjur af var að það væri ekki nógu mikið af bananabrauði fyrir allar stelpurnar. Það reyndist blessunarlega vera meira en nóg af því. Stelpurnar komu sumar einar, aðrar í hóp og einhverjar komu saman í bíl þrátt fyrir að hafa aldrei hist áður. Fjallgangan var misauðveld fyrir þær en allar virtust þær skemmta sér vel og eignuðust nýja vini. View this post on Instagram A post shared by Kyana Sue Powers • Adventure Travel • Iceland (@kyanasue) „Ég var næstum því farin að tárast þegar ég heyrði stelpur skiptast á símanúmerum eða að ræða flutningana til Íslands,“ skrifaði Kyana meðal annars á Instagram og var djúpt snortin yfir nýjum vináttum. Fimmtíu stelpur mættu í gönguna ásamt tveimur hundum og einu sætu litlu barni. Þær voru frá tuttugu löndum og í hópnum voru margar íslenskar. „Ég vona að þetta samfélag haldi áfram að vaxa og gera skemmtilega hluti eins og að vera með bókaklúbb, föndurkvöld, matarboð, partí, helgarferðir og fleira. Á tímum þar sem allir eru límdir við skjáinn þarfnast fólk samveru með öðru fólki og stelpur þurfa að eiga stelpustundir,“ bætir Kyana við í textanum og hvetur allar áhugasamar stelpur til að vera með í hópnum.
Samfélagsmiðlar Ástin og lífið Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Richard Riehle látinn Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Sjá meira