Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. september 2026 14:56 Svona var glugginn eftir að maður mætti með sleggju í morgun. Samsett/Aðsend Brotist var inn í raftækjaverslunina Mi búðin við Ármúla snemma í morgun. Framkvæmdastjórinn segir að ítrekaðar tilraunir hafi verið gerðar til að brjótast inn í verslunina en þó með misjöfnum árangri. „
Rétt fyrir klukkan sex í morgun þá er brotist inn hjá okkur. Það er maður sem mætir með sleggju og kemst þarna í gegnum rúðuna okkar. Rúðurnar okkar eru tvöfalt öryggisgler og svo er líka öryggisfilma. Það er nánast ómögulegt að brjótast inn, nema þú mætir með sleggju greinilega,“ segir Örvar Blær Guðmundsson, framkvæmdastjóri Mi. Þjófurinn var inni í versluninni í um þrjátíu sekúndur en náði að hafa á brott með sér spjaldtölvur, farsíma og rafmagnshlaupahjól. Þetta er í annað skipti sem brotist hefur verið inn í verslunina á þessu ári en í þau sex ár sem verslunin hefur staðið við Ármúla hefur verið reynt að brjótast inn nokkrum sinnum á ári. Frá innbroti í verslunina fyrr á árinu.Aðsend „Það er dýrt að missa hlutina en síðan er oft mesti kostnaðurinn í skemmdunum. Hann skemmdi öryggiskerfið okkar sem heldur símunum,“ segir hann. Þá er öryggiskerfið þeirra beintengt við kerfi lögreglunnar svo hún fær tilkynningu nær samstundis. Datt á glerbrotin Örvar ítrekar að í langflestum tilfellum komist innbrotsþjófarnir ekki inn í verslunina vegna öryggisráðstafana sem þau hafa gert. Að auki séu eftirlitsmyndavélar víða svo alla jafna náist þeir á mynd. „Í júní þegar það var brotist inn hjá okkur var maðurinn sem braust inn heillengi að reyna að komast inn. Ég veit ekki hvort hann lifði af, það var svo mikið blóð,“ segir hann. Maðurinn hafi ítrekað skorið sig á glerinu og síðan dottið í glerið. Aðkoman hafi verið ónotaleg þar sem blóðslettur hafi verið úti um allt. Blóðslettur voru út um alla verslunina eftir innbrotið í júní.Aðsend Blóðslóðin hafi legið út Ármúlann og að húsnæði Konukots sem stendur við Ármúla 34. Örvar segist þá hafa heyrt í samtali við aðra rekstraraðila við götuna að þeir hafi átt í einhverjum vandræðum vegna þessa, til að mynda hefðu bílar viðskiptavina þeirra orðið fyrir skemmdum. Ekki er hægt að fullyrða um að þeir sem leiti í athvarf Konukots séu ábyrgir fyrir skemmdunum eða innbrotunum. Örvar hefur einnig heyrt af fleiri innbrotum í hverfinu en telur samt sem áður innbrotin ekki hafa verið tengd við svæðið. Töluvert var fjallað um innbrotahrinu í miðborginni og nágrenni hennar á Vísi í sumar. Öll málin felld niður Örvar segist hafa leitað til lögreglunnar í hvert skipti sem brotist var inn og hafi hann kært nokkra innbrotsþjófa. Hins vegar hafi öll málin verið felld niður, ýmist vegna skorts á sönnunargögnum eða öðru. „Lögreglan kom í morgun og skoðaði upptökurnar og þekkti ekki manninn allavega. Þetta er alltaf það sama, öll þessi mál hafa verið felld niður,“ segir hann. „Það liggur við að við sleppum því að hringja í lögregluna.“ Þrátt fyrir það er hann með upptökur af öllum innbrotunum og hefur sést í húðflúr eða álíka svo hægt er að einkenna þjófinn. Þeir innbrotsþjófar sem komast inn í verslunina fá oftast lítið upp úr því. Um leið og kveikt er á stolnum símum læsast þeir og er engin leið til þess að nota þá. „Yfirleitt er ekki náð að stela neinu, oftar en ekki komast menn ekki inn en fyrir svona þremur árum þá komst einhver inn og náði að taka nokkra síma en það sem menn fatta ekki er að þessir símar eru allir læstir.“
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri kjósa að fæða án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Sjá meira