Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. september 2026 16:39 Fjöldi kvenna fylgdust með atkvæðagreiðslunni árið 2019. Vísir/Vilhelm Fjöldi kvenna sem fóru í þungunarrof jókst ekki þrátt fyrir lagabreytingu árið 2019 sem gerði þeim kleift að fara í þungurrof fram að lokum 22. viku meðgöngunnar. Áfram voru flest þungunarrofin framkvæmd fyrir lok tólftu viku.
Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis. Ný lög um þungunarrof tóku gildi árið 2019 og var með þeim konum heimilt að óska eftir þungunarrofi fram að lokum 22. viku meðgöngu. Tekið er fram að þungunarrof skuli framkvæma eins fljótt og auðið er og helst fyrir lok 12. viku. Mikill hiti var á þinginu þegar frumvarpið var afgreitt. Fjörutíu þingmenn greiddu atkvæði með gegn átján og var Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármálaráðherra, einn þeirra sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Það telst heldur óvanalegt að sitjandi ráðherra greiði atkvæði gegn stjórnarfrumvarpi. Allir þingmenn Miðflokks og Flokks fólksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Þrátt fyrir að tölurnar í Talnabrunninum séu ekki taldar að fullu sambærilegar gefa þær í skyn að lítil breyting hafi orðið á fjölda framkvæmdra þungunarrofa eftir lagabreytinguna. Tölurnar fyrir og eftir 2019 eru ekki samanburðarhæfar vegna breytinga á lögum og skráningu gagna.Talnabrunnur Fjöldi framkvæmdra þungunarrofa árið 2025 var 1.1117 talsins eða 12,2 á miðað við hverjar þúsund konur. Frá 2020 til 2025 voru fæst þungunarrof framkvæmd árið 2021, 932 talsins, en flest 2024, 1.148 talsins. Flest framkvæmd fyrir tólftu viku Flestar konur sem létu framkvæma þungunarrof árin 2020 til 2025 voru á aldrinum 20 til 24 ára og 25 til 29 ára. Tæplega helmingur allra þungunarrofa var hjá konum á þrítugsaldri sem er svipað og fyrir gildistöku laganna. Þá hafa ekki orðið verulegar breytingar á meðgöngulengd við þungunarrof en í 95 prósent tilvika var þungun rofin fyrir tólftu viku meðgöngu. Hlutfall þungunarrofa greint eftir meðgöngulengd, 2020-2025. „Árið 2025 var mikill meirihluti þungunarrofa framkvæmdur snemma á meðgöngu en um 85% kvenna voru gengnar skemur en níu vikur þegar þungunarrof var framkvæmt. Til samanburðar var hlutfallið 80% árin 2017 og 2018.“ Rannsókn sýnir fram á sömu niðurstöður „Ísland er áfram nálægt norrænu meðaltali þegar tíðni þungunarrofa er borin saman. Samkvæmt nýjustu norrænu skýrslunni voru árið 2023 framkvæmd 12,1 þungunarrof á hverjar 1.000 konur á frjósemisaldri (15- 49 ára) á Norðurlöndunum í heild. Tíðnin var lægst í Finnlandi, 7,1 á hverjar 1.000 konur, en hæst í Svíþjóð, 15,8 á hverjar 1.000 konur,“ segir í Talnabrunninum. Vísað er í norræna rannsókn sem segir að þrátt fyrir rýmra lagaumhverfi á Norðurlöndunum hafi tíðni þungunarrofa almennt verið stöðug eða farið lækkandi frá því um miðjan níunda áratuginn. Í þeirri rannsókn kemur einnig fram að þrátt fyrir lagabreytinguna á Íslandi árið 2019 virðist hún hvorki hafa leitt til fjölgunar þungunarrofa né aukningar á þungunarrofum sem eru framkvæmd síðar á meðgöngu.
Þungunarrof Alþingi Embætti landlæknis Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Sjá meira