Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Kjartan Kjartansson skrifar 25. september 2026 11:50 Félagasamtökin SÁÁ reka sjúkrahúsið Vog í Reykjavík. Vísir/Vilhelm SÁÁ stefnir á að taka inn nýja skjólstæðinga tvo daga í næstu viku en lokað hefur verið fyrir innlagnar þar ótímabundið vegna mönnunarvanda. Forstjóri stofnunarinnar segir unnið að því að leysa vandann í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld.
Upplausn hefur ríkt innan SÁÁ sem rekur meðferðarstofnanir við fíknivanda. Bæði forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga létu nýlega af störfum vegna ósættis við stjórn félagasamtakanna SÁÁ. Nýr framkvæmdastjóri lækninga er eini starfandi sérfræðilæknirinn þar þessa stundina. Í þessari viku hefur ekki verið tekið við nýjum skjólstæðingum á sjúkrahúsinu á Vogi vegna þess sem SÁÁ kallar „tímabundinn skort á læknum“. Í tilkynningu frá samtökunum segir að í næstu viku sé stefnt að innlögnum á mánudag og föstudag. Staðan verði metin dag frá degi. Opnað verði fyrir ionnlagnir eins hratt og auðið verði um leið og mönnun leyfi. „Ákvörðunin er tekin til að tryggja öryggi sjúklinga og faglega umönnun. Unnið er að því af fullum krafti að leysa mönnunarvandann, meðal annars í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld,“ segir í tilkynningunni. Einstaklingar sem eigi von á innlögn á næstu tveimur vikum fái símtal frá starfsfólki SÁÁ þar sem farið verði yfir stöðuna og þeim boðinn frekari stuðningur á meðan þeir bíða. Heilbrigðisyfirvöld hafa þrýst á SÁÁ um að koma skikk á mál sín. Tilkynnt var í morgun að Sjúkratryggingar og SÁÁ hefðu náð saman um að endurskoða samning þeirra til þess að styrkja stjórnarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu sem SÁÁ veitir. Á meðal þess sem starfsmenn sem hafa hætt hjá SÁÁ hafa gagnrýnt er að stjórn félagasamtakanna hafi verið með fingurna í faglegu meðferðarstarfi sem samtökin bjóða upp á.
SÁÁ Fíkn Reykjavík Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Sjá meira