Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Árni Sæberg skrifar 25. september 2026 14:39 Alvarlegasti hluti árásarinnar var framinn í Kópavogi við Elliðavatn. Vísir/Vilhelm Fimm karlmenn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir í garð manns í ágúst árið 2023. Þeim er meðal annars gefið að sök að hafa troðið járnröri inn í endaþarm mannsins og svo stungið því í munn hans. Einn þeirra er ákærður fyrir að hafa tekið athæfið upp á myndskeið og deilt því í spjallhópinn „Fótbolti á Boys“ á samfélagsmiðlinum Snapchat.
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent fyrr en nú. Ekki liggur fyrir hver afstaða ákærðu er til sakarefnisins, þar sem þingfestingin var lokuð. Mennirnir fimm eru allir ákærðir fyrir að hafa frelsissvipt fórnarlambið í allt að tvær klukkustundir, í félagi við óþekktan mann. Sóttu manninn heim Tveir þeirra hafi sótt manninn að heimili hans í ótilgreindum stað og ekið með hann til höfuðborgarsvæðisins, þar sem þeir hafi ekið með hann með viðkomu á nokkrum stöðum og loks að verslun Krónunnar við Jafnasel í Reykjavík þar sem tveir grímuklæddir menn hafi komið inn í bifreiðina og sest hvor sínu megin við mannninn í aftursæti bifreiðarinnar og bundið hendur hans saman með benslum, tekið hann hálstaki og haldið honum föstum, slegið hann í rifbeinin, meðal annars með barefli úr járni, og hótað honum frekara ofbeldi og lífláti. Á meðan á þessu stóð hafi einn ákærðu ekið bifreiðinni að Elliðahvammsvegi í Kópavogi og síðan eftir vegslóða uns hann stöðvaði bifreiðina á malarplani skammt frá Hólmaþingi í Kópavogi, þar sem brotaþoli hafi verið dreginn út úr bifreiðinni og eftir jörðinni þar sem mennirnir hafi allir veist að honum og slegið hann margsinnis í höfuð og líkama meðal annars með hamri, rúðubrjóti og járnröri, sparkað margsinnis í höfuð og líkama hans, haldið honum niðri, girt niður um hann buxurnar og stungið járnröri, að minnsta kosti einu sinni inn í endaþarm hans, án hans samþykkis, og stungið svo járnrörinu inn í munn hans og skilið hann eftir fáklæddan og skólausan. Allt hafi þetta verið með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut mar og yfirborðsáverka á höfði, meðal annars mar á vinstra gagnauga, eymsli og bólgu yfir hægra kinnbeini, blóð í vinstri eyrnagangi, mar á brjóstkassa, yfirborðssár eða rispur á framanverðum brjóstkassa, mar og yfirborðsáverka á fæti, meðal annars bólgu, mar og eymsli utanvert á hægri ökkla, bólgu, mar og eymsli yfir báðum ristum og bólgu yfir hægra handarbaki, 5. miðhandarbeini. Dreifði myndskeiði af brotinu Þá er einn mannanna ákærður fyrir brot gegn kynferðislegri friðhelgi, með því að hafa á meðan árásin stóð yfir, án samþykkis brotaþola, tekið upp myndskeið sem sýni að járnröri sé að minnsta kosti einu sinni stungið inn í endaþarm mannsins. Síðan hafi hann dreift myndbandinu með því að senda það í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat á einn meðákærðu og á spjallhópinn „Fótbolti á Boys" þar sem allir með ákærðu séu meðlimir auk annarra ónafngreindra manna. Krefst tólf milljóna Loks segir í ákærunni að ákæruvaldið krefjist þess að mennirnir fimm verði dæmdir til refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á fjórum farsímum, rauðum rúðubrjóti, felgulykli og hníf með 28 sentimetra blaði. Þá krefjist fórnarlambið þess að mennirnir fimm, og eftir atvikum fleiri sakborningum sem fram kunna að koma, verði in solidum [óskipt] gert að greiða honum skaðabætur vegna frelsissviptingar, meiriháttar líkamsárásar, kynferðisbrots og ráns upp á rétt tæplega tólf milljónir króna.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Lögreglumál Kópavogur Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Sjá meira