„Þegar þú átt séns þá er það að reyna að grípa hann“ Kári Mímisson skrifar 25. september 2026 18:51 Ólafur Kristjánsson er þjálfaru U-21 árs landsliðsins. vísir / anton brink Það var létt yfir Ólafi Kristjánssyni, þjálfara íslenska U21 árs landsliðsins eftir jafntefli liðsins gegn Frökkum nú í dag. Liðið spilaði vel gegn sterku liði Frakka en frammistaðan lofar virkilega góðu fyrir framtíðina. „
Þetta var virkilega góð frammistaða hjá liðinu hér í dag gegn þessu öfluga franska liði. Við vorum vel skipulagðir og klárir. Það gaf aðeins á bátinn í fyrri hálfleik, en menn þjöppuðu sér saman við það og heilt yfir verð ég að segja að það var góður bragur á liðinu.“ Íslenska liðið spilaði eins og áður segir afar vel og þá sérstaklega í seinni hálfleik þar sem Frakkar náðu ekki að skapa sér mikið ásamt því fengu strákarnir okkar urmul færa til að klára leikinn. Ólafur segir að liðið hafi spilað frábæran varnarleik og tekist að stöðva Frakka áður en þeir hafi náð að refsa. „Það sem einkennir kannski þetta franska lið er að þeir vilja fara í þessi hröðu upphlaup, og ef við töpuðum boltanum hátt voru þeir fljótir að refsa. Við töluðum um að missa ekki boltann þegar við værum úr stöðum, til að forðast að fá á okkur þessi upphlaup. Mér fannst það takast vel hjá okkur og við færðum liðið aðeins til á vellinum þannig að hægri bakvörðurinn okkar, Hlynur, væri ekki jafn einn á kantinum. Það gekk líka vel hjá okkur í seinni hálfleik. Þá voru menn líka aðeins rólegri á boltanum í staðinn fyrir að reyna alltaf fyrstu sendinguna í gegn. Við fengum aðeins meiri orku eftir að við náðum ró á boltann.“ Í ljósi hvernig þetta spilaðist er þá ekki svekkjandi að hafa ekki fengið öll þrjú stigin? „Við hefðum alveg getað sett sigurmarkið hér í seinni hálfleik. Þeir áttu sömuleiðis ekki mörg skot á markið. Varnarleikurinn var frábær og sóknarleikurinn virkilega góður líka. Það voru möguleikar á að vinna þennan leik, en við getum ekki verið að svekkja okkur á því. Við erum bara farnir að einbeita okkur að næsta verkefni, og það er gegn Sviss á þriðjudaginn. Nú tökum við það sem við gerðum vel hér inn í þann leik og hugsum um hvernig við ætlum að vinna Sviss.“ Sviss á þriðjudaginn, hvernig metur þú möguleikana fyrir þann leik? „Ég met möguleikana gegn Sviss fína. Það hefur verið mikill stígandi í hópnum og liðinu undanfarin misseri. Strákarnir eru með sjálfstraust og þeim líður vel. Við eigum bara að vera brattir. Við hvílum okkur núna og verðum klárir gegn Sviss á þriðjudaginn. Sviss er auðvitað hörkulið líka, en þegar þú átt séns þá er það að reyna að grípa hann.“
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Sjá meira