„Titlar eða föll hafa breyst á seinustu sekúndu“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 25. september 2026 20:32 Matthías er þjálfari Vals. Vísir/Diego „Spennufall, svekktur, við hefðum átt að taka þennan leik, Valsliðið spilaði vel í dag,“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals í þungum þönkum eftir 1-1 jafntefli gegn Víkingi á Hlíðarenda.
Valsliðið er enn á lífi í Bestu deildinni eftir leikinn en á fyrir höndum úrslitaleik um að halda sér í deildinni næsta föstudag. Matthías segir lið sitt þurft að fá betri færi til þess að ná að klára leikinn í kvöld. „Við þurftum einhvern veginn að komast í fleiri dauðafæri. Þetta var mikið af skotum og svo framvegis, sem er jákvætt en ég hefði viljað komast í betri færi.“ Valur komst yfir á 14. mínútu með góðu marki frá Emmu Hawkins, en skömmu seinna fékk liðið á sig klaufalegt jöfnunarmark eftir darraðardans í teignum. Matthías var langt frá því að vera sáttur með að hafa fengið það mark á sig. „Því miður er þetta skelfilegt mark sem við fáum á okkur, allt of ódýrt og ég er svekktur með það að sjálfsögðu.“ Komandi vika er risastór fyrir kvennalið Vals í fótbolta í sögulegu samhengi, en liðið hefur aldrei fallið úr efstu deild í 50 ára sögu félagsins. Það gæti þó gerst næsta föstudag, líkt og það hefði getað gerst í kvöld ef leikurinn hefði tapast. Aðspurður út í komandi viku hafði Matthías þetta að segja. „Já það er sama rútína. Við þurfum að líta á þennan leik, góð frammistaða. Við erum enn þá lifandi og við þekkjum það sem höfum fylgst lengi með knattspyrnu að titlar eða föll hafa breyst á seinustu sekúndu í tímabilum, svo það er allt hægt.“ Eftir úrslit kvöldsins er ljóst að Fram, andstæðingur Vals í lokaumferðinni, kemur pressulaust inn í þann leik eftir að hafa unnið Þór/KA í kvöld og er því hólpið frá falli. Aðspurður hvort það gæti skipt máli eftir viku þá stóð ekki á svörum hjá Matthíasi. „Ég hugsa það ekki einu sinni. Við þurfum að vera við, við þurfum að spila góðan leik. Ég geri mér ekki grein fyrir hvernig Fram á eftir að mæta, en ég veit að staðreyndin er sú að okkur hefur gengið illa með Fram. Bara það eitt og sér er að við skuldum frammistöðu á móti Fram.“
Valur Besta deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Sjá meira