Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Stefán Árni Pálsson skrifar 29. september 2026 08:01 Arnar Gunnlaugsson ætlar sér að vinna leikinn í kvöld. vísir/sigurður „Þetta var alveg nett þunglyndið eftir leikinn á laugardaginn. Eins og á að vera eftir vonbrigðaúrslit. Svo horfum við á leikinn aftur og að mörgu leyti var hann nokkuð góður. Það voru móment sem við hefðum getað gert miklu betur,“ segir Arnar Gunnlaugsson á Stade de Luxembourgh í gær fyrir leikinn gegn heimamönnum í Þjóðadeildinni í kvöld. „
Ég þarf bara að telja strákunum trú um að halda áfram og laga það sem fór verr og mér fannst svona eins og okkur langaði þetta of mikið, langaði að sýna í hverri einustu sókn, hverri einustu varnarfærslu hvað við værum orðnir góðir. Og á þessu leveli þá þarf bara ein, tvö móment og þér er refsað.“ Klippa: Arnar Gunnlaugsson finnur fyrir pressunni Hann segir að leikmenn liðsins séu allir vanir töluverðri pressu. „Ég held að þessir strákar séu búnir að vera undir pressu aðallega frá sjálfum sér, frá því þeir voru sex mánaða. En þetta er árangursbransi sem ég geri mér grein fyrir. En þú verður að finna einhvern veginn stað í hjartanu til að geta slakað á líka inn á milli og ekki fara of hátt upp þegar vel gengur og ekki allt of langt niður þegar illa gengur. Við fengum stig og ég minnti líka strákana á það í gær að þetta er deildarkeppni, þetta er ekki bikar þannig að staðan er ekki verri en sú að með sigri eru þeir komnir í toppinn í riðlinum þannig að þá eru allt í einu allir orðnir hetjur aftur.“ Fyndinn bransi Sjálfur finnur Arnar Gunnlaugsson vissulega fyrir pressu sem landsliðsþjálfari en á hans ferli hefur liðið unnið þrjá leiki af síðustu sautján. „Þetta er svo fyndinn bransi eitthvað. Það hefðu getað verið svona fjögur, fimm mismunandi úrslit í Laugardalnum. Við hefðum getað unnið leikinn 3-0. Þeir hefðu getað unnið 2-1. Þetta hefði getað endað 3-3. En við þurfum bara að halda fókus og ekki fórna langtímamarkmiðum fyrir skammtímamarkmið. Þú ert bara einhvern veginn stanslaust að læra í þessu djobbi. Stundum velur þú bestu fótboltamennina, stundum er það ekkert besta liðið og væs versa. Stundum þarft þú betra balans í þessa stöðu og í þetta kerfi, þannig að þetta er bara stanslaus lærdómur. Leikurinn á móti Eistum var ekki það slakur eins og allir tala um. Við vorum með bakverðina mjög hátt uppi í uppspili í markinu okkar og það var frábært mark. En það hefur enginn áhuga á að tala um það, tala um einhverja fallega hluti þegar úrslitin falla ekki með okkur, þá vilja allir vera með hnífana úti og það er bara í fínu lagi.“ Leikur Lúxemborgar og Íslands er í kvöld klukkan 18:45. Bein útsending á Sýn Sport hefst klukkan 18.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ Sjá meira