Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Smári Jökull Jónsson skrifar 29. september 2026 22:43 Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmanna skilaði stjórnarmyndunarumboðinu í gær. Óljóst er hver fær umboðið næst. Vísir/EPA Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum.
Vinstri flokkarnir fjórir í Svíþjóð fögnuðu þegar úrslit úr kosningunum þann 13. september voru ljós. Hafði þeim þá tekist að fella þingmeirihluta ríkisstjórnar hægri flokkanna með Ulf Kristersson forsætisráðherra í fararbroddi. Stjórnmálaskýrendur voru hins vegar sammála um að myndun ríkisstjórnar í kjölfarið yrði flókin, ekki síst vegna hinna svokölluðu rauðu lína sem sumir flokkanna höfðu dregið, það er útilokað samstarf í ríkisstjórn með ákveðnum flokkum. Niðurstöður þingkosningaþegar 100% atkvæða hafa verið talin Miðflokkurinn, sem segja má að sé systurflokkur Framsóknar, útilokaði til að mynda samstarf við Vinstriflokkinn sem og fjarhægriflokk Svíþjóðardemókrata. Í raun hafa allir flokkar vinstri blokkarinnar útilokað að þeir muni vinna með síðarnefnda flokknum. Svipaða sögu er hægt að segja af flokkum hægri blokkarinnar sem segja Vinstriflokkinn vera óstjórntækan öfgaflokk. Vinstriflokkurinn hefur aldrei setið í ríkisstjórn en heldur nú fast í kröfu um ráðherrastóla og ætlar ekki að láta sér duga að vera stuðningsflokkur minnihlutaríkisstjórnar í enn eitt skiptið. Það er ekki óalgengt að öfgaflokkar á sitthvorum enda hins pólitíska áss séu útilokaðir. Það sem hins vegar flækir stöðuna er að Miðflokkurinn hefur hafnað samstarfi við flokka bæði til hægri og vinstri og lýst yfir áhuga á að mynda miðjustjórn. Það krefst þess að blokkirnar leysist upp en hefð fyrir stjórn miðjuflokka þvert á blokkir er lítil sem engin í Svíþjóð. Forseti þingsins miðpunktur athyglinnar Þegar úrslit kosninganna voru ljós fékk Magdalena Andersson, formaður Jafnaðarmanna, umboð til stjórnarmyndunar enda Jafnaðarflokkurinn stærsti flokkur vinstri blokkarinnar sem saman er með meirihluta þingsæta. Síðan þá hafa samtöl átt sér stað á milli flokkanna og fréttir borist að illa gangi. Ekki dró þó til tíðinda fyrr en síðastliðið sunnudagskvöld. Þá tilkynnti framkvæmdastjóri Vinstriflokksins í beinni útsendingu á ríkismiðlinum SVT að flokkurinn myndi ekki greiða atkvæði með tillögu Jafnaðarmanna um nýjan forseta þingsins líkt og búist var við. Flokkurinn myndi þess í stað greiða atkvæði með tillögu fráfarandi stjórnarflokka um að Andreas Norlén yrði áfram þingforseti en hann er þingmaður Moderaterna, flokks Ulf Kristersson fráfarandi forsætisráðherra, og hefur gegnt embætti forseta síðustu fjögur árin. Óhætt er að segja að þessi ákvörðun hafi farið öfugt ofan í Jafnaðarmenn. Strax morguninn eftir skilaði Magdalena Andersson stjórnarmyndunarumboðinu og sagðist hafa gefist upp á að reyna að mynda stjórn. Jafnaðarmenn litu þannig á að Vinstriflokkurinn styðji nú ríkisstjórnarmyndun til hægri og sögðu ákvörðunina jafngilda stríðsyfirlýsingu. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna Amanda Lind Talsmaður Græningja. Daniel Helldén Talsmaður Græningja. Ebba Busch Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra. Elisabeth Thand Ringqvist Formaður Miðflokksins. Jimmie Åkesson Formaður Svíþjóðardemókrata. Magdalena Andersson Formaður Sósíaldemókrata. Nooshi Dadgostar Formaður Vinstriflokksins. Simona Mohamsson Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra. Ulf Kristersson Formaður Moderaterna og forsætisráðherra. Í kjölfarið hafa bæði Magdalena Andersson og Elisabeth Thand Ringqvist, formaður Miðflokksins, sagt að eðlilegt framhald sé að Ulf Kristersson fái umboð til stjórnarmyndunar. Því hefur Kristersson tekið fálega enda ólíklegt að honum muni ganga betur að mynda stjórn sem hefur meirihluta þingmanna á bakvið sig. Kristersson vill hins vegar að forseti þingsins láti kjósa um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra og hafa formenn hinna flokka hægri blokkarinnar talað á svipuðum notum. Forseti þingsins getur í mesta lagi lagt fram fjórar tillögur að forsætisráðherra til atkvæðagreiðslu í þingsalnum, verði þær allar felldar skal boða til nýrra kosninga. Ólíklegt er að Andersson sé með meirihluta þingmanna á bakvið sig á meðan ekki er búið að mynda starfhæfa stjórn og því líklegt að tillaga um hana sem forsætisráðherra yrði felld í þinginu. Norlén þingforseti hefur ekki útilokað að þingmenn verði látnir kjósa um forsætisráðherrakandídata. Verði þær tillögur felldar færi það Svía nær nýjum þingkosningum sem auki pressuna á formenn flokkanna að ná saman. „Eins og enginn vilji fá boltann“ Stjórnmálaskýrandi SVT, Mats Knutson, segir að staðan sé læst og líkt og enginn flokksformaður vilji fá stjórnarmyndunarumboðið. „Rauðgræna blokkin [vinstri blokkin] vill að Ulf Kristersson fái umboðið og hægri flokkarnir vilja að kosið verði um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra. Það er eins og enginn vilji fá boltann og það er ný staða.“ Frá þingsetingu í Svíþjóð í gær.Vísir/EPA Hann segir að myndun ríkisstjórnar virðist ætla að ganga sérlega illa í þetta skiptið. Árið 2018 tókst ekki að mynda stjórn fyrr en í janúar en þá var búið að fella tillögu að forsætisráðherra einu sinni í þinginu. „Staðan virðist algjörlega læst. Ekki bara eins og það var áður á milli Miðflokksins og Vinstriflokksins heldur er ekkert traust á milli Jafnaðarmanna og Vinstriflokksins.“ Fyrrum forsætisráðherrann Carl Bildt segir að það sé líklegra en fólk haldi að kjósa þurfi upp á nýtt. „Það er allt læst og mun vera það þar til einhver mun taka algjöra U-beygju, hver svo sem það á að vera. En það er það sem krefst til að losa um,“ segir Bildt við Aftonbladet og bætir við að hann búist við nokkrum tilraunum til stjórnarmyndunar áður en niðurstaða fæst. Dregur til tíðinda í fyrramálið Í fyrramálið mun draga til tíðinda því þá hefur þingforsetinn Andreas Norlén boðað formenn alla flokka til sín á fundi. Hann byrjar á því að hitta Ulf Kristersson klukkan hálf sjö að íslenskum tíma og lýkur öllum fundahöldum fyrir hádegi. Í kjölfarið mun Norlén ráðfæra sig við varaforseta þingsins og síðan upplýsa konunginn Karl Gústaf XVI um stöðu mála. Hlutverk konungsins í þessu samhengi er þó aðeins að forminu til sem þjóðhöfðingi og völd hans við myndun ríkisstjórnar engin.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira