Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. september 2026 09:28 Vélin er í eigu flugfélagsins flydubai. Christopher Pike/Getty Images Farþegaþotu á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í Ísrael var beint til Sádí-Arabíu eftir „slagsmál“ milli tveggja flugmanna vélarinnar. Áhöfn vélarinnar naut aðstoðar farþega við að yfirbuga annan flugmanninn og binda hendur hans fastar. Óljósar fregnir hafa borist af hníf í vélinni og að flugmenn úr hópi farþega hafi hjálpað til við lendingu.
Þetta kemur fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins þar sem vísað er til umfjöllunar í ísraelskum miðlum. Þar segir að flugvélin hafi verið á vegum flugfélagsins Flydubai og tekið á loft frá alþjóðaflugvellinum í Dúbaí snemma í morgun. Tveimur tímum eftir flugtak hafi hún sent frá sér neyðarkall. Nokkrum mínútum síðar hafi flugmálayfirvöldum verið tilkynnt af flugstjóra að um flugrán væri að ræða. Sú tilkynning hafi svo verið afturkölluð og aftur sagt að um hefðbudið neyðarkall væri að ræða. Breska ríkisútvarpið segir að neyðarmerkið hafi verið sent út í kjölfar „ágreinings“ milli flugstjórans og aðstoðarflugmannsins, að því er fram kemur í upplýsingum frá ísraelskum yfirvöldum. 150 manns eru um borð í vélinni, flestir Ísraelar. Í stað þess að lenda á Ben-Gurion flugvelli í Tel Aviv lenti vélin á Tabuk flugvelli í norðausturhluta Sádí-Arabíu. Ísraelskur farþegi um borð hefur sagt blaðamönnum að áhöfnin hafi beðið um hjálp og að farþegar hafi þá hjálpað til við að yfirbuga annan flugmanninn og binda hann. Í yfirlýsingu segir Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, að búið sé að ná tökum á ástandinu. Segir hann að unnið sé að því að koma ísraelsku farþegunum heim frá Sádi-Arabíu. Þá hefur Reuters rætt við farþega um borð í vélinni. Yasmin Abu Kasis segir fréttastofunni að dóttir hennar, Miriam, hafi verið í fluginu og að hún hafi heyrt öskur. Dóttir hennar segir að maður með hníf hafi þvingað annan flugmanninn niður á gólfið og að það hafi verið blóð út um allt. Flugmenn úr hópi farþega hafi hjálpað til við lendingu Breska ríkisútvarpið hefur eftir farþega að annar flugmaðurinn hafi stungið hinn. Farþegar fremst í vélinni hafi hjálpað til við að koma árásarmanninum úr flugstjórnarklefanum. Þá segir vitnið að tveir aðrir flugmenn hafi verið í hópi farþega. Þeir hafi setið aftast í vélinni og segist hann hafa hrópað á þá að hlaupa fremst í vélina til að hjálpa til við að stýra henni. Hann segir að tannlæknir um borð hafi veitt slasaða flugmanninum lífsbjargandi aðhlynningu.
Ísrael Sameinuðu arabísku furstadæmin Sádi-Arabía Flug Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira