Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 4. október 2026 07:10 Davíð segist vinna í bata sínum einn dag í einu. Hann nýtur stuðnings fjölskyldu sinnar og vonast til þess að geta hjálpað fleirum sem glími við fíknivanda. Aðsend Davíð Már Stefánsson var nítján ára þegar hann settist niður með foreldrum sínum og sagði þeim loksins frá því sem hafði verið í gangi. Hann var orðinn spilafíkill og búinn að eyða öllum peningnum sem hann átti. Nokkrum klukkutímum síðar læsti hann sig inni í herbergi og byrjaði aftur að spila.
Í dag er Davíð 21 árs og vinnur að þróun á snjallforriti sem ætlað er fólki sem glímir við spilafíkn. Ekki síst ungu fólki sem á erfitt með að stíga fyrsta skrefið og leita sér hjálpar. Vakti á nóttunni til að spila Spilafíkn Davíðs byrjaði þegar hann var sautján ára nemandi í Tækniskólanum þar sem hann lagði stund á rafmagnsverkfræði. Stundum leiddist honum í tímum og hann var ekki alveg með hugann við námið. Þá leitaði hann í símann. „Ég byrjaði að fara inn á svona „online casino“ síður, spilavíti á netinu, byrjaði með því að setja inn einhverjar tuttugu evrur og svo varð þetta strax bara svo ótrúlega gaman og spennandi. Fljótlega eftir að ég byrjaði fékk ég mjög stóran vinning upp á tæpa milljón. Ég áttaði mig náttúrulega ekki alveg á því hvað ég var að gera eða hvaða áhrif þetta myndi hafa á mig. Maður sá bara pening og var alltaf að vinna og vinna og maður vildi meira og meira.“ Eftir því sem leið á hækkuðu tölurnar. Spilamennskan varð fyrirferðarmeiri og fljótlega var hún farin að stjórna daglegu lífi hjá Davíð. „Ég gat verið vakandi tvær eða þrjár nætur í röð að spila, mætt svo í skólann, spilað þar og farið út úr skólanum og haldið áfram að spila. Þetta var alveg búið að taka yfir. Þegar ég var í skólanum var tiltölulega auðvelt að fjármagna þetta. Ég var að vinna og notaði launin í að spila,“ segir Davíð sem byrjaði að steypa sér í skuldir. „Ég tók yfirdrátt og ætlaði að nýta hann og klára þetta. En um leið og yfirdrátturinn var kominn var ég alltaf búinn með peninginn á þriðja eða fjórða degi mánaðarins. Þá byrjaði ég að spyrja foreldra mína og hina og þessa hvort ég gæti fengið smá lánað. Ég reyndi alltaf einhvern veginn að fá lánað, spilaði og reyndi svo að borga til baka.“ Þessi mynd var tekin þegar Davíð var í kringum 17 ára og spilafíknin var farin að taka yfir.Aðsend Þrátt fyrir að spilamennskan væri farin að taka yfir stóran hluta lífsins tókst honum lengi vel að halda vandanum leyndum. Foreldrar hans vissu til að mynda ekki hvað var í gangi. Að einhverju leyti vissi Davíð það reyndar ekki heldur. „Vinir mínir sáu að ég var að spila en þetta var í rauninni mjög falið. Ég held líka að ég hafi verið að blekkja sjálfan mig. Ég áttaði mig ekki sjálfur á því hvað ég var djúpt sokkinn í þetta. Ég hugsaði alltaf: „Ég get alveg hætt. Þetta er ekkert mál. Ég er bara að leika mér. Ég vinn bara eitthvað stórt og borga yfirdráttinn niður.“ Það var alltaf eitthvað slíkt. Ég áttaði mig ekki á því hvað þetta var orðið mikið. Ég var vakandi á nóttunni að spila. Ég var meira að segja að spila á meðan ég var að keyra. Davíð lýsir því þannig að hann hafi verið farinn að skipuleggja næstu klukkutíma út frá því hvað gæti mögulega gerst inni í spilakössunum. „Maður heldur að maður sé að missa af einhverju, en maður er í rauninni ekki að missa af neinu. Ég var til dæmis farinn að hugsa: „Ef þessi bónus kemur klukkan tvö eða þrjú í nótt og ég er ekki vakandi, þá missi ég af honum.“ Maður var farinn að reyna að reikna út spilakassana. Maður var alltaf að reyna að „vinna húsið“.“ Læsti sig inni og byrjaði aftur Um nítján ára aldur var Davíð farinn að átta sig á því að þetta gengi ekki lengur. Hann var í ströggli með að greiða niður yfirdráttinn, hélt áfram að spila og þurfti á sama tíma að eiga pening til að lifa. Í eitt skipti tókst honum að hætta að spila í um tvær vikur. Þá sagði hann foreldrum sínum frá öllu. Viðbrögð foreldranna voru sterk. Móðir hans fór að gráta og bæði hún og faðir hans voru í sjokki. Spilafíkn var til umfjöllunar í Kompás árið 2020 þegar kórónuveirufaraldurinn stóð yfir. „Ég sagði mömmu og pabba frá því að ég væri með yfirdrátt upp á hálfa milljón, að ég hefði verið að spila. Þetta var mjög mikið sjokk fyrir mig og líka þau. Það er mjög erfitt að halda svona leyndarmáli í langan tíma og svo allt í einu að koma því frá sér,“ rifjar Davíð upp. „Þegar ég var búinn að segja þeim frá þessu þennan dag fór ég inn í herbergið mitt, læsti mig inni og byrjaði aftur að spila. Ég fór bara í einhvers konar „blackout“. Ég held að spilafíklar skilji hvað ég á við þegar ég segi það. Ég man bara ekkert. Ég eyddi og eyddi og spilaði og spilaði. Það tók mig ekki nema klukkutíma að klára alla peningana mína. Það var enginn peningur eftir á framtíðarreikningnum, allur peningurinn var búinn. Síðan man ég bara að ég sat á rúmgaflinum hágrátandi.“ Faðir Davíðs hafði á þessum tíma glímt við krabbamein í um tíu ár og var mjög veikur. Davíð á sjálfur óljósar minningar frá þessu tímabili, enda mikið sem gekk á innan fjölskyldunnar. Það eitt að hafa sagt foreldrunum frá vandanum þýddi ekki að Davíð væri tilbúinn að horfast fyllilega í augu við fíknina. Þvert á móti taldi hann sér trú um að þar sem honum hefði tekist að halda sig frá spilunum í tvær vikur væri vandamálið í raun leyst. Á þessum tíma var faðir hans að berjast við krabbamein og mikið gekk á innan fjölskyldunnar. „Ég var enn þá fastur í fíkninni og ekki kominn út úr þessu á þessum tíma. Ég var búinn að ljúga að heilanum mínum án þess að átta mig á því. Ég hugsaði: „Ég er búinn að hætta í tvær vikur. Ég er ekki að spila lengur. Þetta er búið.“ Ég var ekkert að fara í meðferð eða eitthvað svoleiðis.“ Það breyttist skömmu síðar. Davíð leitaði til móður sinnar og bað um hjálp. Honum leið illa, hann hafði verið þunglyndur og var enn að spila. Móðir hans hafði samband við Ölmu Hafsteins hjá spilavandi.is. „Ég var síðan hjá henni í alveg dágóðan tíma. Ég fór líka á GA-fund (innsk: Gamblers anonymous - stuðningshópur fyrir fólk með spilafíkn), sem var ótrúlega erfitt. Að vera nítján eða tvítugur strákur og standa fyrir framan hóp af eldri mönnum og segja að „Ég er spilafíkill“ er svo sannarlega ekki auðvelt. Mamma kom með mér í fyrsta tímann. Ég ætlaði ekki að fara en hún minnti mig á það.“ Fjölskylda Davíðs hefur tekist á við margar áskoranir undanfarin ár.Aðsend Í dag er hann að eigin sögn í bata frá fíkninni. Hann tekur einn dag í einu. „Og ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið hjálp. Ég er heppinn. Ég veit að það eru mörg önnur og miklu verri dæmi þarna úti.“ Vinur bað hann um hjálp Einn daginn fékk Davíð skilaboð frá kunningja sínum sem var sjálfur kominn í vandræði með spilamennsku. „Hann spurði mig hvernig hann ætti að hætta og ég sagði honum að ég mælti mjög mikið með því að fara á GA-fund. Hann var stressaður yfir því að fara á fundinn, þannig að ég bauðst til að fara með honum og við mættum bara. Þá spratt upp þessi hugmynd hjá mér: að búa til einhvers konar samfélag, eða sem sagt samfélagsmiðil fyrir unga spilafíkla. Ég hugsaði með mér að það hlytu að vera ótrúlega margir ungir krakkar sem eru að spila, eiga við þetta vandamál að stríða en eru ekki að stíga fram, vita ekki hvert þeir eiga að leita eða hvernig þeir eiga að bera sig að. Davíð hafði enga reynslu af forritun en hafði lengi haft áhuga á tækni og fór að þróa hugmyndina áfram. Í tvo mánuði sat hann heima og hannaði grunninn að appinu með hjálp gervigreindar. „Ég setti síðan inn færslu í forritaragrúbbu á Facebook, lýsti hugmyndinni og óskaði eftir aðstoð frá forritara. Þá gerðist það að starfsmaður hjá Stokkur Software skrifaði komment undir færsluna og spurði: „Viltu fá aðstoð?“ Og ég auðvitað sagði ég strax já!“ Davíð segist hafa viljað fá fagfólk að verkefninu þar sem hans eigin útgáfa nægði ekki til þess að gera hugmyndina að raunverulegu og nothæfu forriti. „Þess vegna vildi ég fá atvinnumenn, fólk sem kann þetta, til að gera þetta af alvöru og búa til almennilegt app.“ Geta birt færslur nafnlaust Soprano verður ókeypis og verkefnið er ekki rekið í hagnaðarskyni. Davíð vinnur nú að því að afla styrkja svo hægt verði að ljúka þróun forritsins. Hugmyndin er meðal annars að búa til samfélag þar sem fólk getur rætt við aðra sem þekkja spilafíkn af eigin raun. „Þetta er í rauninni svolítið eins og Facebook. Þú getur birt færslu nafnlaust eða undir eigin nafni. Svo eru fleiri möguleikar tengdir þessu og stuðningi frá öðrum spilafíklum. Það er líka svona „streak“-kerfi þar sem maður getur fylgst með bataferlinu. Maður getur fylgst með því hversu lengi maður hefur haldið sér frá spilum. Ef maður fer aftur að spila missir maður „streakið“ og byrjar aftur. Svo er líka neyðarnúmer í appinu sem hægt er að hringja í ef maður er í vanda eða er að fara að spila. Maður getur líka verið með sponsor í appinu.“ Sponsor-kerfið er hugsað þannig að fólk sem þekkir spilafíkn geti verið til staðar fyrir þá sem eru að reyna að hætta. „Segjum sem svo að það séu fimm strákar á appinu sem eru að reyna að hætta að spila. Þá get ég verið sponsor fyrir þá. Þeir geta hringt í mig, talað við mig og ég get reynt að hjálpa þeim. Þetta snýst um að reyna að hjálpa þessum ungu krökkum að stíga fyrsta skrefið. Það er svo mikil skömm tengd þessu en það er nauðsynlegt að útrýma þessari skömm. Það eru ótrúlega margir í þessari stöðu. Stöðugt verið að tala um að betta Soprano er ætlað öllum aldurshópum en Davíð horfir sérstaklega til ungs fólks. Þar telur hann þörfina mikla. „Ég á til dæmis vini sem eru í fótbolta, í meistaraflokki og á okkar aldri. Þeir segja mér að strákarnir í búningsklefanum séu stöðugt að tala um þetta. Það sést jafnvel á þeim hvort þeir hafi tapað eða unnið. Þeir eru annaðhvort glaðir eða leiðir. Það er alveg hægt að taka eftir því.“ Davíð þekkir sjálfur vel hugsunarháttinn sem getur fylgt spilafíkninni, ekki síst tilfinninguna um að maður þurfi stöðugt að vera með, að ef maður hætti, fari að sofa eða loki síðunni sé hætta á að missa af einhverju. Og hann þekkir spurninguna sem gjarnan fylgir þegar fólk reynir að skilja vandann utan frá. „Ég hef mjög oft fengið þessa spurningu frá fólki: „Af hverju hættirðu þessu ekki bara?“ En málið er að „hætta þessu bara“ er miklu erfiðara en það hljómar. Það er í raun mjög erfitt að útskýra fyrir einhverjum sem hefur ekki verið í þessum sporum.“ Soprano er enn í vinnslu og Davíð leitar nú að styrkjum til að halda þróuninni áfram. Upplýsingar um verkefnið er að finna á sopranomus.is og á Instagram undir nafninu Soprano Iceland. Vaxandi vandi meðal ungra karlmanna Saga Davíðs endurspeglar þróun sem sérfræðingar hafa varað við undanfarin ár. Þótt þátttaka Íslendinga í hefðbundnum fjárhættuspilum hafi dregist saman hefur spilun á erlendum vefsíðum aukist, sérstaklega meðal ungra karlmanna. Í rannsókn á spilahegðun Íslendinga kom fram að um fimmtungur karla á aldrinum 18 til 25 ára hefði spilað peningaspil á erlendum vefsíðum. Sérfræðingar hafa bent á að netspilun tengist aukinni hættu á spilavanda og að það að elta tap með sífellt hærri upphæðum sé eitt skýrasta viðvörunarmerkið. Vandinn virðist jafnframt byrja snemma. Samkvæmt ESPAD-könnun frá 2024 höfðu 41 prósent íslenskra 15 til 16 ára ungmenna veðjað fyrir peninga síðastliðna tólf mánuði, samanborið við 23 prósent að meðaltali í 37 Evrópulöndum. Ísland var þar næsthæst á eftir Ítalíu. Þá fimmfaldaðist velta viðskiptavina Íslandsbanka undir átján ára aldri á veðmálasíðum milli áranna 2023 og 2024, úr um tíu milljónum í rúmlega fimmtíu milljónir króna. Aðgengið er mikið og oft er auðvelt að fela spilamennskuna. Alma Hafsteinsdóttir spilafíkniráðgjafi hefur bent á að markhópurinn sé í auknum mæli drengir og ungir menn á aldrinum 15 til 30 ára. Hún hefur einnig vakið athygli á svokölluðum lukkuboxum í tölvuleikjum, þar sem börn kynnast snemma sömu þáttum og einkenna fjárhættuspil: tilviljun, spennu, umbun og lönguninni til að reyna aftur. Á sama tíma hafa erlendar veðmála- og spilavítasíður orðið sýnilegri í íslensku samfélagi. Þær hafa meðal annars verið markaðssettar með aðstoð þekktra tónlistarmanna, áhrifavalda og einstaklinga tengdra íþróttaumfjöllun. Sérfræðingar hafa varað við því að slík markaðssetning geti stuðlað að því að fjárhættuspil verði eðlilegur hluti af umhverfi ungs fólks.
Fíkn Helgarviðtal Fjárhættuspil Samfélagsmiðlar Nýsköpun Mest lesið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Fleiri fréttir Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Sjá meira