Erlent

Mennirnir sem létust voru feðgar

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Frá Halden þar sem skotárásin var.
Frá Halden þar sem skotárásin var. vísir/ap

Mennirnir sem létust í skotárásinni í Halden í Noregi í morgun voru feðgar á áttræðis- og fimmtugsaldri. Þriðji maðurinn er alvarlega slasaður og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Norska ríkisútvarpið (NRK) greinir frá. Maður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um morð. Mennirnir þrír voru hluti af sama veiðihópi og voru að veiðum þegar skotárásin átti sér stað. Maðurinn sem hefur verið handtekinn tilheyrir ekki hópnum.

Lögreglan á svæðinu fékk tilkynningu um skotárás í bænum Halden sem er rúmlega 100 kílómetrum suðaustan við Osló. Vitni hafði yfirbugað árásarmanninn áður en lögreglu bar að garði. 

Verjandi árásarmannsins hefur sagt að hann muni játa sök í málinu. Gerandinn hefur ekki  gefið skýrslu enn sem komið er.

Fjöldi fólks varð vitni að árásinni á morgun og vinnur lögreglan nú að því að ræða við vitni og rannsaka vettvang. Fjórtán manns hafa stöðu brotaþola í málinu en þeir voru allir meðlimir í veiðihópnum. 

„Veiðihópurinn stillti sér upp á bæjarhlaði áður en þeir héldu út á veiðislóðir, þegar gerandi hóf að skjóta á þá,“ er haft eftir lögreglufulltrúanum Anders Svarholt í umfjöllun NRK.

Enn er á huldu hvað vakti fyrir árásarmanninum og hvers vegna hann var á svæðinu. Talið er að hann tengist veiðihópnum með einum eða öðrum hætti en ekki er um fjölskyldutengsl að ræða. Maðurinn er skráður fyrir tveimur skotvopnum og er talinn hafa notað riffil við verknaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×