Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Smári Jökull Jónsson skrifar 5. október 2026 07:36 Flavio Bolsonaro ræðir við fjölmiðla þegar úrslit kosninganna voru ljós í gær. Vísir/AP Flavio Bolsonaro, frambjóðandi hægri manna í Brasilíu, hafði betur gegn Lulu Da Silva, sitjandi forseta landsins, í fyrri umferð forsetakosninganna í gær. Bolsonaro náði þó ekki hreinum meirihluta og verður því kosið á milli þeirra tveggja í annarri umferð þann 25. október.
Flavio Bolsonaro, frambjóðandi hægri manna í Brasilíu, hafði betur gegn Lulu Da Silva, sitjandi forseta landsins, í fyrri umferð forsetakosninganna í gær. Bolsonaro náði þó ekki hreinum meirihluta og verður því kosið á milli þeirra tveggja í annarri umferð þann 25. október. Hét því að veita pabba sínum sakaruppgjöf Þegar búið var að telja nær öll atkvæði hafði Bolsonaro fengið 47,03 prósent atkvæða en Lulu 45,16 prósent. Lulu hafði mælst með meira fylgi í aðdraganda kosninganna og niðurstaðan því nokkuð óvænt. Flavio er sonur Jairs Bolsonaro fyrrum forseta sem afplánar nú tuttugu og sjö ára fangelsisdóm fyrir að hafa skipulagt misheppnaða valdaránstilraun eftir að hafa tapað forsetakosningunum árið 2022. Var hann úrskurðaður óhæfur til endurkjörs en lýsti yfir stuðningi við son sinn. Eiginkona Jairs var kjörin á öldungadeild þingsins í gær. Bolsonaro eldri, sem nýtur meiri stuðnings í suðurhluta landsins á meðal efnameiri kjósenda og kristinna, hefur heitið því að veita föður sínum og þeim stuðningsmönnum hans sem tóku þátt í óeirðum eftir kosningarnar fyrir fjórum árum sakaruppgjöf nái hann kjöri. Talinn eiga sigurinn vísan Fréttaskýrendur segja að nú blasi við að Bolsonaro eigi sigurinn vísan í seinni umferðinni enda hafi nokkrir þeirra frambjóðenda sem féllu úr leik í fyrri umferðinni í gær verið hægrisinnaðir og líklegri til að kjósa hann í þeirri síðari. Frjálslyndi flokkurinn, flokkur Bolsonaro, fékk jafnframt kjörna flesta ríkisstjóra, öldungadeildarþingmenn og fulltrúadeildarþingmenn og verður því áhrifamestur allra flokka á þingi. Lulu, sem er orðinn áttræður, sagði eftir að hafa greitt atkvæði í gær að valið stæði á milli lýðræðis og villimennsku. Hann sagði að niðurstaða kosninganna væri óvænt en að úrslitin væru ekki ráðin. „Ég viðurkenni að ég var sannfærður um að ég myndi vinna í fyrri umferðinni en leikurinn er rétt að byrja. Við erum í framlengingu og þar munum við vinna brasilísku þjóðina á okkar band.“ Bolsonaro sagðist aftur á móti vilja frelsa brasilísku þjóðina en Brasilía er stærsta ríki og með stærsta hagkerfi Suður-Ameríku. Raunverulegur möguleiki væri á því að eftir þrjár vikur myndu Brasilíumenn svara með því að kjósa nútímalega ríkisstjórn. Engar vísbendingar um afskipti stjórnar Trump Brasilíska þjóðin hefur skipst í fylkingar í kosningunum. Lula nýtur meiri vinsælda meðal tekjulágra, kaþólikka og kvenna en hann sækist nú eftir því að verða kosinn forseti í fjórða sinn. Hann vann afar nauman sigur á Bolsonaro eldri í kosningunum árið 2022 og eftir þær kosningar réðust stuðningsmenn Bolsonaro á opinberar byggingar landsins. Forseti kjörstjórnar Brasilíu sagði í gær að engar vísbendingar hefðu fundist um erlend afskipti af kosningunum. Lula sakaði á köflum Bandaríkin um að reyna að hafa áhrif á kosningarnar en því hafa bandarísk stjórnvöld neitað. Fyrr á árinu fékk Bolsonaro Bandaríkin til að skilgreina tvö stærstu glæpagengi Brasilíu sem hryðjuverkasamtök og á síðasta ári notaði Donald Trump réttarhöldin yfir Jair Bolsonaro sem réttlætingu fyrir tollum á Brasilíu og refsiaðgerðum gegn æðstu embættismönnum og dómurum landsins. Sigur Bolsonaro myndi líklega þýða að Brasilía gengi til liðs við bandalagið Shields of Americas gegn eiturlyfjasmygli og tengdist um leið Bandaríkjunum nánari böndum.
Brasilía Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Erlent Fleiri fréttir Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Sjá meira