Innlent

Aldraður læknir sparkaði í flug­freyju

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn réðst á flugfreyju um borð í flugvél Icelandair.
Maðurinn réðst á flugfreyju um borð í flugvél Icelandair. Vísir/Vilhelm

Íslenskur læknir á níræðisaldri hefur verið ákærður fyrir óspektir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum í desember árið 2023 og fyrir að ráðast á flugfreyju í sama flugi.

Í ákæru þess efnis, sem tekin verður til aðalmeðferðar á föstudaginn, segir að maðurinn sé ákærður fyrir líkamsárás og hótun með því að hafa veist að flugfreyju, með því að sparka í hægri sköflung hennar og með því að hóta henni lífláti. Hótunin hafi verið til þess fallin að vekja hjá brotaþola ótta um líf sitt og velferð.

Þá sé hann ákærður fyrir brot gegn lögum um loftferðir með því að hafa ítrekað farið gegn fyrirmælum flugverja um góða hegðun og reglu en hann hafi verið ógnandi við flugverja, hrópað að þeim og öðrum farþegum og ráðist með orðum og ofbeldi á flugverja.

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar auk þess sem flugfreyjan krefur hann um miskabætur upp á 1,5 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×