Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. október 2026 12:43 Brotum gegn börnum hefur fjölgað töluvert. Vísir/Viktor Freyr Tæplega 350 kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglu á fyrstu sex mánuðum ársins. Þau hafa ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá árinu 2021.
Tilkynnt brot voru 346 talsins og er það að meðaltali tvær tilkynningar á dag eða 58 tilkynningar á mánuði. Það eru um níu tilkynningar á hverja tíu þúsund íbúa sem er svipað og árið 2022. Þetta kemur fram í nýbirtri tölfræði frá lögreglunni. Tæplega helmingur brotaþola voru börn í öllum kynferðisbrotunum en einungis tíu prósent grunaðra voru undir átján ára. Konur voru 85 prósent brotaþola en þegar einungis er litið til nauðgana voru konur 93 prósent brotaþola. „Hlutföllin snúast við þegar kemur að kyni grunaðra, þar voru 92% karlkyns,“ segir í tilkynningunni. Töluvert fleiri brot gegn börnum Tilkynnt var um 103 nauðganir til lögreglu, þar af 81 sem átti sér stað á tímabilinu. Fjöldinn er nánast óbreyttur frá árinu 2025 en fjórtán prósentum fleiri en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár þar á undan. „Lögreglan skráir bæði hvenær kynferðisbrotið átti sér stað og hvenær það var tilkynnt til lögreglu, þar sem í hluta mála líður langur tími á milli,“ segir í tilkynningunni. Þá fjölgaði tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot um sextíu prósent milli ára og hafa tilkynningarnar ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi. Alls var tilkynnt um 72 kynferðisbrot gegn börnum sem er sextán prósenta fjölgun milli ára. „Í ljósi fjölgunar stafrænna kynferðisbrota og hás hlutfalls barna meðal brotaþola munu ríkislögreglustjóri og lögregluembættin í samstarfi við fjölda stofnana og samtaka standa fyrir vitundarvakningu um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna í október.“ Tilkynningum um vændi fjölgaði einnig töluvert, úr 21 tilkynningu í 33 sem gerir 57 prósenta fjölgun. Brotin voru að meðaltali fjórtán árin 2023 - 2025.
Kynferðisofbeldi Börn og uppeldi Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira