Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Árni Sæberg skrifar 7. október 2026 19:02 Eivydas Laskauskas sagðist fyrir dómi vera raunverulegur stjórnandi Heklara. Vísir/Vilhelm Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú félagsins Heklarar ehf, sem námu tæplega 27 milljónum króna. Félagið rataði í fréttir í desember í fyrra þegar fjallað var um smygl á 5,6 kílóum á kókaíni. Í janúar var eigandi félagsins dæmdur í 3,5 ára fangelsi fyrir smyglið ásamt kærasta sínum og þriðja manni. Fyrir dómi sagði kærastinn að kærasta sín hefði í raun verið leppur fyrir hann.
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. septemer. Skiptum hafi verið lokið án þess að nokkuð fengist upp í 27 milljóna króna kröfur. Samkvæmt Fyrirtækjaskrá var félagið í eigu Kamile Radzeviciute og tilgangur þess bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Kamile var þann 26. janúar síðastliðinn dæmd í þriggja ára og sex mánaða fangelsi ásamt þeim Eivydas Laskauskas og Egidijus Dambraukskas. Þau voru ákærð fyrir innflutning á 5,7 kílóum af kókaíni sem falin voru í BMW-bíl sem fluttur var frá Íslandi til Litáen og aftur til Íslands með flutningsskipi. Vísir fjallaði um aðalmeðferð málsins, sem fór fram þann 1. desember síðastliðinn. Eivydas sagðist fyrir dómi kannast við að hafa keypt umræddan BMW-bíl á Bland.is í gegnum fyrirtækið Heklara ehf. Heklarar ehf. væri í eigu Kamile en hún væri kærasta hans. Hann kvaðst hafa starfað í byggingageiranum undanfarin ár ásamt því að sýsla með bíla. Hann hefði nokkrum sinnum orðið gjaldþrota og Kamile hefði í raun verið leppur fyrir hann og hann stjórnaði Heklurum.
Fíkniefnabrot Földu kókaín í BMW Smygl Dómsmál Gjaldþrot Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Sjá meira