Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kjartan Kjartansson skrifar 8. október 2026 12:11 Furðu lostinn fjármálaráðherra á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun. Flauta truflaði ávarp Daða Más Kristóferssonar. Skjáskot Hávært flaut batt enda á ræðu Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra, á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun. Hann fullvissaði viðstadda um að flautið væri ekki leið forystu sambandsins til þess að koma honum af sviðinu.
Daði Már var að ljúka ávarpi sínu þar sem hann fjallaði um samstarf ríkis og sveitarfélaga þegar hávært flaut stöðvaði hann. Eftir rúma mínútu af fáti og flissi úr sal gat ráðherrann loks upplýst ráðstefnugesti um að engin hætta væri á ferðum. „Ég hef fengið þær fréttir að allt sé í góðu. Þetta er hvorki verk forystu Sambands íslenskra sveitarfélaga til þess að losna við mig af sviðinu né merki um neina katastrófu. Mín orð áttu ekkert að verða fleiri, þannig að ég þakka fyrir mig,“ sagði Daði Már. Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar og ráðstefnustjóri, tók þá við hljóðnemanum og sagði svona fara þegar frummælendur færu fram úr sér í tíma. „Við erum sjúklega agressív á tímastjórnun hérna í dag,“ sagði Björg. Aðstæður aldrei beti til þess að ná tökum á stöðunni Í ávarpinu ræddi fjármálaráðherra meðal annars um kjarasamningaviðræður. Gríðarlega mikilvægt væri að ríki og sveitarfélög tryggðu sameiginlega stöðugleika með því að stilla verð- og launaákvörðunum í hóf. Fagnaði hann þeirri ábyrgð sem sveitarfélögin hefðu sýnt í því. Sagðist Daði Már sannfærður um að ávextir þessa sameiginlega verkefnis létu ekki á sér standa. Aðstæður til þess að takast á við stöðuna væru nú eins góðar og þær gætu nokkurn tímann orðið.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sveitarstjórnarmál Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Sjá meira