Atvinnulíf

War­ren Buf­fet: Raun­veru­legur árangur snýst um ástina

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Warren Buffet, nú 96 ára, segir raunverulegan mælikvarða á árangur felast í ástinni. Því til hvers að vera moldríkur og deyja, án þess að nokkur syrgi þig í raun?
Warren Buffet, nú 96 ára, segir raunverulegan mælikvarða á árangur felast í ástinni. Því til hvers að vera moldríkur og deyja, án þess að nokkur syrgi þig í raun? Vísir/Getty

Við eigum nokkra stórmeistara í viðskiptalífi síðustu og þessarar aldar. Warren Buffet er án efa einn þeirra. Moldríkur fjárfestir, 96 ára og þekktur fyrir jarðbundinn lífsstíl og einföld ráð.

Í tilefni þess að Buffet lét nýverið af forstjórastarfi sínu hjá Berkshire Hathaway rifjaði blaðamaður FastCompany upp nokkur af þekktustu ráðum Buffet.

Sem svo sannarlega eru hvert um sig svo gott!

1. Ekki tefla í tvísýnu því sem þú átt

Buffett hefur bent á hversu oft fólk og fyrirtæki taka óþarfa áhættu, oft af einskærri græðgi. Að tefla mikilvægum verðmætum í hættu til að reyna að eignast eitthvað sem skiptir engu raunverulegu máli er fásinna – jafnvel þótt líkurnar virðist manni í hag.

2. Veldu heiðarlegt samstarfsfólk

Þegar kemur að samferðafólki og samstarfi skiptir karakterinn mestu. Í erindi við háskólanema bað Buffet nemendur um að velja sér þann samnemanda sem þeir myndu vilja eiga 10% í tekjum hjá til æviloka. Niðurstaðan er sú að flestir horfa ekki bara á gáfur, heldur velja þann sem býr yfir leiðtogahæfileikum, er bóngóður, heiðarlegur og eignar sér ekki hugmyndir annarra.

3. Raunverulegur árangur snýst um ástina

Þótt auður og völd fylgi oft skilgreiningu samfélagsins á velgengni, telur Buffett að æðsti mælikvarðinn sé annar: Hversu margir af þeim sem þú vilt að elski þig gera það í raun og veru? 

Hægt er að deyja vellauðugur án þess að nokkur syrgi mann í einlægni.

 Í lífinu gildir að því meiri kærleika sem maður gefur af sér, því meira fær maður til baka.

Að mati Buffetts byggist farsælt líf sjaldnast á flókinni sérfræðiþekkingu, heldur á því að taka réttar ákvarðanir um hvað – og hverjir – skipta okkur raunverulega máli.


Tengdar fréttir

Að læra af fimm mistökum Steve Jobs

Það er ekkert sem kennir okkur jafn góðar lexíur eða styrkir og mistök sem við náum að draga lærdóm af. Því ekkert okkar getur litið í baksýnisspegilinn og ekki séð hvar eða hvernig við hefðum mátt gera betur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×