Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Árni Sæberg skrifar 9. október 2026 16:01 Slysið varð í Mosfellsbæ árið 2021. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur viðurkennt bótaskyldu VÍS vegna tjóns tveggja ungra kvenna og ungs karlmanns. Þau lentu í slysi árið 2021 þegar þau voru 13 og 14 ára og pilturinn ók breyttu léttu bifhjóli með stúlkurnar aftan á. Vátryggingafélagið vildi meina að létta bifhjólið hefði orðið skráningar- og vátryggingaskylt eftir að því var breytt þannig að það kæmist umtalsvert hraðar en óbreytt létt bifhjól og bótaskylda væri því ekki fyrir hendi.
Í þremur samhljóða dómum Landsréttar, sem kveðni voru upp í gær, segir að atvik málsins hafi orðið aðfaranótt mánudags í ágúst árið 2021, þegar árekstur varð í Mosfellsbæ með létta bifhjólinu og bifreið sem tryggð hafi verið lögboðinni ökutækjatryggingu hjá VÍS. Ökumaður bifreiðarinnar hafi verið sautján ára, réttindalaus og hafi ekið af vettvangi en snúið aftur skömmu síðar og þá verið handtekinn. Létt bifhjól í flokki I eða II? Aðilar málsins hafi deilt um það hvort bifhjólið hefði talist til léttra bifhjóla í flokki I og þar með hvorki verið skráningar- né vátryggingarskylt eða í flokki II, og slík skylda þá fyrir hendi. Í skýrslu um rannsókn á bifhjólinu hafi komið fram að með kveikt á rofa, sem komið hefði verið á hjólinu, næði það 25,6 kílómetra hraða á klukkustund en væri slökkt á honum næði það hraðanum 57,6 kílómetrum á klukkustund. Þrátt fyrir það komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að bifhjólið teldist enn í flokki I í skilningi þágildandi umferðarlaga, með vísan til rökstuðnings héraðsdóms þess efnis að það væri ekki „hannað“ til hraðari aksturs en hefðbundið létt bifhjól í flokki I, í skilningi umferðarlaganna þágildandi. Í núgildandi umferðarlögum hefur ákvæði verið bætt við sem leggur bann við breytingum sem hækka hámarkshraða léttra bifhjóla í flokki I. Létt bifhjól eru skilgreind sem vélknúin ökutæki á tveimur, þremur eða fjórum hjólum sem eru ekki hönnuð til hraðari aksturs en 45 kílómetra á klukkustund og eru með sprengirými sem er ekki yfir 50 rúmsentimetrum séu þau búin brunahreyfli eða með samfellt hámarksafl sem er ekki yfir 4 kW séu þau búin rafhreyfli. Létt bifhjól greinast síðan í létt bifhjól í flokki I sem eru ekki hönnuð til hraðari aksturs en 25 kílómetra á klukkustund og létt bifhjól í flokki II sem eru hönnuð til hraðari aksturs en 25 kílómetra á klukkustund. Gáleysi en ekki stórkostlegt Í dómi Landsréttar segir að aðilar hafi einnig deilt um það hvort tjón unga fólksins hefði hlotist af notkun bifreiðarinnar og hvort það hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og hvort fella ætti niður bætur til þess eða lækka af þeirri ástæðu. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að þótt það teldist til gáleysislegrar hegðunar af hálfu unga fólksins tveggja að setjast ásamt tveimur öðrum á létt bifhjól án þess að bera hjálm á höfði yrði sú háttsemi ekki virt sem stórkostlegt gáleysi í skilningi laga um ökutækjatryggingar. Því væri bótaskylda VÍS viðurkennd.
Umferðaröryggi Samgönguslys Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira