Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kristján Már Unnarsson skrifar 10. október 2026 22:32 Fornleifafræðingurinn Ole Guldager bendir á staðinn sem hann telur hafa verið Brattahlíð Eiríks rauða. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson Fornleifafræðingar á vegum þriggja norrænna stofnana tilkynntu í síðustu viku að staðfest væri að þekkt rúst innarlega við hinn forna Eiríksfjörð á Grænlandi sé stór norræn miðaldakirkja. Danskur fornleifafræðingur, sem ekki kom sjálfur að rannsókninni, telur að núna sé fengin sönnun á því að staðurinn, þar sem kirkjurústin fannst, sé í raun hin rétta Brattahlíð, landnámsjörð Eiríks rauða.
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tíma norrænu byggðarinnar. Sönnunin væri núna fengin með því að fundist hefði kirkjugarður umhverfis kirkjuna og gröf með beinagrind sem bæri ótvíræð merki kristinna greftrunarsiða norrænna manna. Fornleifarannsóknin er á vegum Þjóðminjasafns og Þjóðskjalasafns Grænlands, Þjóðminjasafns Danmerkur, Háskólasafnsins í Bergen og UNESCO, Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Rannsakendur vinna enn að greiningu sýna en telja að stærð kirkjunnar og tilhöggnir steinar hennar bendi til að hún sé frá tímabilinu 1100 til 1300. Fornleifafræðingarnir fagna fundi grafarinnar. Fyrir miðri mynd er Christian Edelfelt Koch Madsen, sem stýrir rannsókninni.Ellen Frederiksen/Nationalmuseet Kirkjurústin er um tíu kílómetrum innan við þann stað sem núna er opinberlega talinn hafa verið landnámsjörðin og höfðingjasetrið Brattahlíð. Þar byggði Eiríkur rauði bæ sinn þegar hann sigldi úr Breiðafirði árið 985 til að nema Grænland og fylgdi honum fjöldi skipa. Úr varð nýtt norrænt landnám fólks sem aðallega er talið hafa komið frá vestanverðu Íslandi, fólks sem í framhaldinu kannaði lönd í Ameríku undir forystu Leifs Eiríkssonar, Þorfinns Karlsefnis og Guðríðar Þorbjarnardóttur. Norræna byggðin á Grænlandi lagðist hins vegar í eyði um 450 árum síðar og er mönnum það enn hulin ráðgáta hvað varð um fólkið. Með hvarfi byggðarinnar glataðist vitneskja um samfélagið, eins og um örnefni og staðsetningu bæja. Krossarnir tákna þá staði í Eystribyggð þar sem fundist hafa minjar um kirkjur. Rauði hringurinn er utan um kirkjurústina innst í hinum forna Eiríksfirði sem þessi frétt fjallar um. Punktarnir tákna aðrar minjar sem fundist hafa eftir norrænu byggðina.Þjóðminjasafn Danmerkur Í þáttaröðinni Landnemarnir, sem Stöð 2 gerði fyrir áratug, var fjallað um þá óvissu og reikistefnu sem verið hefur um staðsetningu Brattahlíðar. Þannig var hún lengi talin hafa verið við annan fjörð á stað sem menn síðar sannmæltust um, eftir að þar fannst biskupsgröf, að væri biskupssetrið Garðar. Þá þurfti að finna Brattahlíð nýjan stað. Hin opinbera niðurstaða varð sú að staðsetja landnámsbæinn þar sem núna er þorpið Qassiarsuk ekki fjarri Narsarsuaq-flugvelli, sem er handan fjarðar. Meginrökin voru þau að þar hefðu fundist minjar um kirkju enda væru ritaðar heimildir um að Þjóðhildur, kona Eiríks rauða, hefði látið reisa kirkju í Brattahlíð. Séð yfir staðinn sem í dag er opinberlega talinn hafa verið Brattahlíð Eiríks rauða. Styttan er af Leifi heppna Eiríkssyni horfandi til Ameríku. Handan fjarðar, lengst til hægri, er Narsarsuaq-flugvöllur.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson Í þætti Landnemanna, sem frumsýndur var árið 2016, kynnti danski fornleifafræðingurinn Ole Guldager, sem búsettur er í Narsarsuaq, þá kenningu sína að Brattahlíð hafi verið innar í firðinum. Bæði taldi hann þann stað rýma betur við örnefnið Brattahlíð, vegna brattrar hlíðar, en einnig hafi þar fundist kirkjurúst. Tilgáta hans var rakin lauslega í þessari frétt: Svo vill til að fornleifafundurinn, sem kynntur var í síðustu viku, er einmitt á þeim stað sem Ole Guldager telur vera hina fornu Brattahlíð. Fréttastofa hafði því samband við hann á ný og spurði hverju þetta breytti um hans kenningu og hvort núna væri Þjóðhildarkirkja fundin: „Já, þetta eru svo sannarlega kirkjurústirnar sem við ræddum um áður,“ sagði Ole Guldager en telur fréttaflutning af „fundi“ kirkjunnar nokkuð ónákvæman. Rauða línan markar kirkjugarðsvegginn. Innan línunnar eru kirkjugarðurinn og kirkjan. Var þarna landnámsjörð Eiríks rauða?Nationalmuseet „Fornleifafræðingateymið frá Þjóðminjasafni Grænlands, sem rannsakaði fornleifarnar, „fann“ þær ekki, þótt það sé orðalagið sem notað hefur verið. Með uppgreftrinum hafa þau sannað að um kirkju er að ræða, rétt eins og ég og aðrir á undan mér höfum haldið fram. Eina ástæðan fyrir því að ég hef ekki rannsakað málið sjálfur er sú að mér tókst ekki að fá leyfi til uppgraftar frá Þjóðminjasafni Grænlands, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,“ segir Ole. Fornleifafræðingateymið við uppgröftinn.Michael Nielsen/Grønlands Nationalmuseum og Arkiv „Engu að síður er ég mjög ánægður með þessa nýju niðurstöðu, og ég var reyndar viðstaddur þegar gröfin fannst. Ég tel núna sannað, án nokkurs vafa, að staðurinn sé Brattahlíð. Hvort um kirkju Þjóðhildar er að ræða er þó óvíst, þar sem hugsanlegt er að enn eldri kirkja hafi verið á staðnum.“ Tilgátuhús Þjóðhildarkirkju við þorpið Qassiarsuk. Kirkjan var reist í tilefni afmælis landafundanna árið 2000 í mynd upphaflegar kirkju Þjóðhildar, eiginkonu Eiríks rauða. Edda Lyberth, leiðsögumaður Bændaferða, leikur söguna með tilþrifum fyrir íslenska ferðamenn.Stöð 2/KMU Ole Guldager, sem sjálfur rekur safn í Narsarsuaq, telur hins vegar litlar líkur á að kenning sín, um að þarna hafi Brattahlíð verið, fái miklar undirtektir að sinni. „Ég geri ráð fyrir því að það muni taka langan tíma fyrir kenninguna um Brattahlíð að ná almennri viðurkenningu. Það eru öfl sem vilja halda hlutunum óbreyttum. Tíminn mun leiða það í ljós,“ segir fornleifafræðingurinn og bætir við að vel geti verið að hann birti grein um kenningu sína síðar meir. Íslenskir ferðamenn við rústir Hvalseyjarkirkju, sem eru einhverjar veglegustu minjar sem fundist hafa eftir norrænu byggðina á Grænlandi. Skjal um brúðkaup í kirkjunni árið 1408 er síðasta heimild sem varðveist hefur um norræna samfélagið.Stöð 2/Kristján Már Unnarsson
Grænland Fornminjar Landnemarnir Söfn Tengdar fréttir Brattahlíð Eiríks rauða var þar sem bratta fjallið er Danskur fornleifafræðingur telur að landnámsjörð Eiríks rauða á Grænlandi sé ranglega staðsett í dag og að Brattahlíð hafi staðið innar við hinn forna Eiríksfjörð. 26. desember 2016 20:00 Landnám Eiríks rauða á heimsminjaskrá Eystribyggð á Grænlandi þriðju menningarminjar Íslendingasagna sem komast á heimslista UNESCO 10. júlí 2017 22:15 Þjóðin sem hvarf bjó á Grænlandi í 500 ár Byggð norrænna manna á Grænlandi og dularfull örlög hennar verða efni næsta þáttar Landnemanna á Stöð 2 á mánudagskvöld. 18. desember 2016 08:15 Tóftirnar í Kanada passa við lýsingar í Vínlandssögunum Sænskur fornleifafræðingur, sem rannsakaði einu staðfestu húsarústirnar um veru norrænna víkinga í Ameríku, kveðst viss um að Leifur heppni hafi reist þær. 2. janúar 2017 20:00 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira
Brattahlíð Eiríks rauða var þar sem bratta fjallið er Danskur fornleifafræðingur telur að landnámsjörð Eiríks rauða á Grænlandi sé ranglega staðsett í dag og að Brattahlíð hafi staðið innar við hinn forna Eiríksfjörð. 26. desember 2016 20:00
Landnám Eiríks rauða á heimsminjaskrá Eystribyggð á Grænlandi þriðju menningarminjar Íslendingasagna sem komast á heimslista UNESCO 10. júlí 2017 22:15
Þjóðin sem hvarf bjó á Grænlandi í 500 ár Byggð norrænna manna á Grænlandi og dularfull örlög hennar verða efni næsta þáttar Landnemanna á Stöð 2 á mánudagskvöld. 18. desember 2016 08:15
Tóftirnar í Kanada passa við lýsingar í Vínlandssögunum Sænskur fornleifafræðingur, sem rannsakaði einu staðfestu húsarústirnar um veru norrænna víkinga í Ameríku, kveðst viss um að Leifur heppni hafi reist þær. 2. janúar 2017 20:00