Innlent

Þrettán þúsund hafa skrifað undir

Telma Tómasson skrifar
Frá mótmælum á Austurvelli í gær.
Frá mótmælum á Austurvelli í gær. Vísir/Viktor Freyr

Rúmlega þrettán þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda um verndun Seyðisfjarðar og verða undirskriftalistar afhentir Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í dag klukkan ellefu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruverndarsamtökum sem stóðu fyrir mótmælum gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði í gær.

Fjöldi fólks kom saman til að mótmæla sjókvíaeldi Kaldavíkur í firðinum, bæði í Seyðisfirði og Reykjavík, samtímis á báðum stöðum.

Um er að ræða mikið hitamál fyrir austan og telur lögmaðurinn Katrín Oddsdóttir, sem var ein skipuleggjanda mótmælanna, mikla annmarka á leyfisveitingum fyrir fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði.

Sjá einnig: „Fokkið ykkur úr firðinum“

Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stendur á bak við mótmælaaðgerðir, þeirra á meðal Landvernd, félög sem berjast fyrir villta laxastofninum á Íslandi, og Vá, félag um vernd fjarðar.


Tengdar fréttir

Hafi verið beggja vegna borðsins

Deildarstjóri fiskeldisdeildar Matvælastofnunar segir fyrrverandi starfsmann Fiskeldis Austfjarða ekki hafa komið að áhættumati vegna fyrirhugaðs eldis félagsins í Seyðisfirði. Honum hafi aðeins verið beint tiltekinni spurningu um staðal fyrir eldisbúnað. Katrín Oddsdóttir lögmaður gagnrýnir að leitað hafi verið til hans þrátt fyrir reglu um að hann kæmi ekki að málinu.

Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum

Mótmæli gegn sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði fara samtímis fram þar og á Austurvelli í dag. Lögmaður segir stefna í fjölmenna fundi enda mikið hitamál fyrir austan og telur hún mikla annmarka á leyfisveitingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×