Fótbolti

Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“

Aron Guðmundsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir leiðir Ísland inn á Laugardalsvöllinn í kvöld gegn Króatíu.
Glódís Perla Viggósdóttir leiðir Ísland inn á Laugardalsvöllinn í kvöld gegn Króatíu. Getty/Bradley Collyer

Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði segir íslenska landsliðið ekki mega fara fram úr sér nú þegar liðið er svo stutt frá því, en samt langt, að tryggja sér sæti á HM í Brasilíu. Hún hélt einnig spilunum þétt að sér aðspurð um vítaspyrnur sínar.

Ís­land er þremur leikjum frá HM í Brasilíu á næsta ári. Svo nálægt en samt svo langt frá þessum draumi sem leik­menn eins og Glódís Perla hafa verið að eltast við lengi.

Það að vera svona nálægt þessum draumi slær stelpurnar ekki út af laginu. Fjórum mörkum yfir í undanúr­slita­ein­víginu gegn Króatíu fyrir seinni leikinn í dag og sæti í úr­slita­ein­víginu í augsýn en bara næsti leikur sem gildir.

Klippa: Glódís hélt spilunum þétt að sér

„Við tökum þett bara einn leik í einu,“ sagði Glódís Perla, lands­liðs­fyrir­liði á blaða­manna­fundi í gær. „Við eigum eftir að taka mörg skref áður en við getum sagt að þetta sé innan seilingar. Eitt skref í einu, við þurfum að taka hvert skref virki­lega vel til þess að þetta gangi upp. Við getum ekki farið fram úr okkur. Þrjú stór verk­efni í viðbót til þess að láta þennan draum verða að veru­leika,“

Varnar­menn skoruðu þrjú af fjórum mörkum Ís­lands í fyrri leiknum gegn Króötum. Ágætis mont­réttur sem hægt væri að fara inn á æfingar með til þess að stríða fram­herjum liðsins.

„Þetta er liðsíþrótt og skiptir ekki alveg máli hver skorar. En ég get alveg ímyndað mér að fram­herjunum sé farið að kitla í að fara skora,“ sagði Glódís sem skoraði ein­mitt eitt marka Ís­lands í um­ræddum leik gegn Króötum úr víta­spyrnu en að auki lagði hún upp tvö mörk.

Í viðtali við Guð­mund Aðal­stein hjá Fót­bolti.net eftir fyrri leikinn gegn Króötum ytra sagði Glódís Perla að víta­spyrna sín hefði geta verið betri, þrátt fyrir að boltinn hafi endað í netinu sagðist hún myndu skoða það að skjóta í hitt hornið næst.

Að­spurð hvort hún hafi tekið ákvörðun um það og hvort hún hafi æft víta­spyrnur milli leikja vildi Glódís lítið gefa upp, skiljan­lega:

„Ég get ekkert gefið það upp hér,“ sagði Glódís og hló. „Þær gætu verið að hlusta. Auðvitað er maður alltaf að hugsa og pæla í hlutunum. Við Cecilía æfum þetta svolítið saman.“

Seinni leikur Íslands og Króatíu í undanúrslitum umspils fyrir HM 2027 í Brasilíu hefst klukkan hálf sex á Laugardalsvelli í dag. Ísland 4-0 yfir í einvíginu og mjög nálægt því að tryggja sæti sitt í úrslitaeinvíginu. Leik kvöldsins verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×