Innherji

Enn af bremsu­fari Ragnars Þórs og sjálf­um­g­leði ríkis­stjórnarinnar

Millistjórnandinn skrifar
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að meðal þess sem grefur undan verðstöðugleika sé samningsfrelsi í viðskiptum. Þess vegna hefur Ragnar Þór lagt fram frumvarp um svokallaða leigubremsu.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að meðal þess sem grefur undan verðstöðugleika sé samningsfrelsi í viðskiptum. Þess vegna hefur Ragnar Þór lagt fram frumvarp um svokallaða leigubremsu.

Millistjórnandinn leiddi að því líkum í síðustu viku að þegar allt verður yfirstaðið verði bremsufar Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, áberandi víða í samfélaginu. Verður það að teljast nokkuð afrek hjá félagsmálaráðherranum í viðleitni sinni við að koma böndum á verðbólgu.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að meðal þess sem grefur undan verðstöðugleika sé samningsfrelsi í viðskiptum. Þess vegna hefur Ragnar Þór lagt fram frumvarp um svokallaða leigubremsu. Samkvæmt frumvarpinu verður fyrirtækjum óheimilt að semja um að leiga atvinnuhúsnæðis hækki umfram vísitölu neysluverðs. Jafnframt verður aðeins heimilt að hækka leiguna einu sinni á tólf mánaða fresti, jafnvel þótt leigusali og leigutaki séu sammála um annað fyrirkomulag.

Nú eru lögfræðingar víðsvegar um bæinn að vakna upp við vondan draum við lestur frumvarpsins, sem fékk ekki að fara hefðbundna leið í gegnum samráðsgátt stjórnvalda, því að gildissvið laganna nær einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Með öðrum orðum er ríkisvaldið, með Ragnar Þór við stýrið, að taka handbremsubeygju á atvinnuhúsnæðismarkaði sem gæti haft víðtækar afleiðingar.

Þetta á ekki síst við um stór fasteignafélög. Fjármögnun slíkra félaga byggist að verulegu leyti á verðtryggðum skuldum á móti vísitölutengdum leigutekjum. Nú hyggst Ragnar Þór hins vegar banna mánaðarlega vísitöluhækkun leiguteknanna á meðan verðtryggðar skuldir félaganna halda áfram að hækka í hverjum mánuði. Ráðherrann ætlar semsagt að bremsa tekjuhliðina en leyfa skuldahliðinni að halda ótrauð áfram.

Ríkisstjórnin hefur komist að þeirri niðurstöðu að meðal þess sem grefur undan verðstöðugleika sé samningsfrelsi í viðskiptum. Þess vegna hefur Ragnar Þór lagt fram frumvarp um svokallaða leigubremsu.Vísir/Vilhelm

Bremsufarið í bókum félaganna kann að verða áberandi svo ekki sé sterkar að orði kveðið, enda engin smáræðisbreyting. Miðað við 5,9 prósent ársverðbólgu verða leigutekjur um 2,65% lægri með árlegri vísitöluuppfærslu en mánaðarlegri. Fyrir fasteignafélag með 15 milljarða króna í árlegar leigutekjur jafngildir munurinn um 400 milljónum króna á ári, að því gefnu að allir samningar falli undir nýja fyrirkomulagið. Á sama tíma halda verðtryggðar skuldir áfram að hækka mánaðarlega. Ekki þarf mikla reikningskunnáttu til að átta sig á að slíkt fyrirkomulag getur haft áhrif á verðmat fasteignafélaga, fjármögnun þeirra og að lokum leigukjör fyrirtækjanna sem nýta húsnæðið.

En kannski er þetta, þegar allt kemur til alls, bara upplifun millistjórnenda.

Nýbakaður varaformaður á sigurbraut

Á meðan millistjórnendur í einkageiranum flykktust á hið árlega sjálfbærnifestival Ólafs Ragnars Grímssonar í Hörpunni héldu starfsbræður þeirra hjá hinu opinbera suður til Sandgerðis á flokkstjórnarfund Samfylkingarinnar.

Þar var Guðmundur Ari Sigurjónsson kjörinn varaformaður flokksins og sannaði þar með hið fornkveðna: Best er að vera einn í biðröðum. Guðmundur Ari var sem sagt einn í kjöri. Hinn nýbakaði varaformaður er heldur betur á sigurbraut þessi misserin. Flestum er í fersku minni þegar Guðmundur Ari sigraði í skemmtiskokkinu í Seltjarneshlaupinu í vor og skaut þar með helstu keppinautum sínum, þeim Magnúsi Kjartani níu ára og Leó þriggja ára, ref fyrir rass, en þeir voru í 2. og 3. sæti.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var svo sannarlega ánægð með fundinn og lét það í ljós á Facebook. Þar lýsti hún hinum mikla uppgangi sem er á Íslandi í huga hennar þessa dagana.

Hinn nýbakaði varaformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, er heldur betur á sigurbraut þessi misserin.Vísir/Einar

Í færslunni stærir forsætisráðherra sig af því að grafa undan sjálfbærni ríkisfjármálanna með því að tengja bótagreiðslur við launavísitöluna og að hafa stofnað hið ófjármagnaða innviðafélag Göngubrú ohf. Þá lýsir hún því yfir sigri hrósandi að verðhækkanir á húsnæðismarkaði hafi verið „stöðvaðar“ sem er afleiðing þess að markaðurinn er einfaldlega botnfrosinn með tilheyrandi neikvæðum auðsáhrifum á landsmenn. Forsætisráðherra fullyrðir einnig að atvinnuvegafjárfesting sé hin mesta í fimmtíu ár – að frátöldum árunum fyrir fjármálahrun – en skautar framhjá þeirri staðreynd málsins að þegar gagnaverin, sem eru í eigu erlendra innviðasjóða, eru tekin út fyrir sviga þá er vöxturinn nánast engin. Á flestum vígstöðvum finna stjórnendur í atvinnulífinu enda áþreifanlega fyrir því að það kreppir að skóinn og eru því farnir að halda að sér höndum við stærri fjárfestingar.

Margir velta fyrir sér hver eiginlega skrifi þessar færslur forsætisráðherrans. Nafn Sean Spicer hefur verið nefnt í því samhengi en aðrir hugsa til Muhammad Saeed al-Sahhaf, betur þekktur sem Comical Ali eða Baghdad Bob, og gerði garðinn frægan í innrás Bandaríkjamanna í Írak 2003.

Uppgangurinn í valdatíð hinnar vitru verkstjórnar valkyrjanna

Kristrún var vart búin að sleppa orðinu um hinn mikla uppgang í valdatíð hinnar vitru verkstjórnar valkyrjanna að Alþýðusambandið gaf út hagspá fyrir næstu ár. Hagspekingar ASÍ höfðu greinilega ekki lesið skrif Kristrúnar á Facebook því þeir sjá ekkert nema þrumur og eldingar í kortunum – vaxandi atvinnuleysi og sáralítinn hagvöxt.

Donald Trump og Kristrún Frostadóttir í New York í síðasta mánuði. Misræmi í orðræðu ríkisstjórnarinnar milli skynjunar og raunveruleikans á stöðu efnahagsmála er farið að minna um margt í Bandaríkjunum um þessar mundir.

En það er auðvitað bara þeirra upplifun, svo vitnað sé til orða Ingu Sæland félagsmálaráðherra. Þetta misræmi milli skynjunar og raunveruleikans á stöðu efnahagsmála er farið að minna um margt í Bandaríkjunum um þessar mundir. Millistjórnandinn vonast eftir því að spár um afgerandi sigur Demókrata í þingkosningunum eftir nokkrar vikur muni ganga eftir en það er ekki síst staða efnahagsmála sem hefur grafið undan Donald Trump Bandaríkjaforseta og Repúblikanaflokknum.

En þeir gera sér enga grein fyrir stöðunni ef marka má lýsingu Katie Zacharia, nýs blaðafulltrúa Hvíta hússins, á afrekum forsetans á sínum fyrsta blaðamannafundi í vikunni. „Trump forseti berst fyrir bandarísku launafólki og skilar árangri hverja einustu mínútu, á hverjum einasta degi,“ sagði Zacharia og upplýsti jafnframt að kaupmáttur launa hefði aukist og meira en milljón störf orðið til í einkageiranum í forsetatíð Trumps. Þessi orð voru látin falla degi áður en bandaríska hagstofan birti tölur sem sýndu 0,7% kaupmáttarrýrnun á síðustu tólf mánuðum.

Það er kannski ekkert skrýtið að Millistjórnandanum og meðreiðarsveinum hans detti það helst í hug að fyrrnefndur Sean Spicer, forveri Zacharia í fyrstu forsetatíð Trump, starfi nú í stjórnarráðinu.

Meira af Kristrúnu. Það kann að hafa farið framhjá mörgum þegar hún mætti í hlaðvarp vefritsins Gímaldsins á dögunum og ræddi meðal annars um þau djúpstæðu áhrif sem Inga Sæland félagsmálaráðherra hefur haft á hana: „Ég hef líklega ekki lært eins mikið af neinum og Ingu Sæland,“ sagði Kristrún í viðtalinu.

Sean Spicer, fjölmiðlafulltrúi.Nordicphotos/AFP

Það er rætt manna á milli að þetta séu heldur kaldar kveðjur frá Kristrúnu til fyrrverandi samstarfsfélaga sinna í Arion banka, Kviku og Viðskiptaráði.

Erlendir fjárfestar flýja bankaskattinn

Talandi um kaldar kveðjur forsætisráðherra til bankageirans. Kristrún Frostadóttir hefur stundum í ræðum sínum, nú síðast á ársfundi Samtaka atvinnulífsins, kallað eftir mikilvægi þess að sækja erlenda fjárfestingu fyrir íslenskt atvinnulíf. Millistjórnandinn tekur heilshugar undir þau markmið. Vandinn er aðeins sá að þegar kemur að framkvæmdinni virðist ríkisstjórnin stundum leggja meiri áherslu á að fæla fjárfestana frá en bjóða þá velkomna.

Það er að minnsta kosti ekki auðvelt að koma auga á samhengið milli yfirlýstrar stefnu og þeirra áforma að stórhækka enn á ný hina sértæku skatta á bankakerfið þannig að þeir verði um sjöfalt hærri en þekkist að jafnaði annars staðar í Evrópu.

Viðbrögðin á hlutabréfamarkaði hafa ekki látið á sér standa. Sjóðir bandaríska eignastýringarrisans Eaton Vance, sem hafa verið meðal umsvifamestu erlendu fjárfestanna á verðbréfamarkaði hér á landi um árabil, hafa á undanförnum dögum og vikum selt bankabréf fyrir marga milljarða króna. Þeir hafa núna losað um alla eignarhluti sína í Íslandsbanka og Arion banka.

Á markaði velta menn því fyrir sér hvort sjóðarisinn sé einfaldlega að kjósa með fótunum og flýja bankaskatt ríkisstjórnarinnar. Hærri skattar rýra enda að óbreyttu arðsemi bankanna með því að draga úr samkeppnishæfni þeirra og skila sér um leið í lakari lánakjörum fyrirtækja og heimila. Verðmæti hluthafanna verða því að lokum minni en þar eru það ríkissjóður, lífeyrissjóðir og íslenskur almenningur sem taka einkum á sig tapið.

Til lengri tíma er þetta þó áminning um annað og enn stærra vandamál. Sífelldar breytingar á skattlagningu fjármálafyrirtækja eru orðnar sjálfstæður pólitískur áhættuþáttur fyrir atvinnulífið og Ísland, líkt og sum alþjóðleg matsfyrirtæki hafa haft á orði í umfjöllun sinni. Skortur á fyrirsjáanleika og aukin stjórnmálaleg áhætta vegna orðræðu og aðgerða stjórnmálamanna, einkum í garð bankakerfisins, dregur augljóslega úr hvata erlendra fjárfesta til að beina sjónum sínum til Íslands þegar umhverfið er farið að minna um margt á popúlísk nýmarkaðsríki.

Lykilstjórnendur hverfa á brott frá Landsvirkjun

Aðeins rúmlega viku eftir að skyndilegt brottharf Harðar Arnarsonar úr stóli forstjóra Landsvirkjunar greindi Rafnar Lárusson, fjármálastjóri orkufyrirtækisins til margra ára, frá því að hann hefði sagt og gaf upp þá ástæðu að hann hefði ákveðið fyrir margt löngu að hann mynd hætta á sama tíma og Hörður.

Flestir í leiknum þykjast hins vegar vita að sjaldan á svona leikur ekki sér einhverjar frekari skýringar. Ljóst er að þessi atburðarrás kemur ekki vel út fyrir hina nýju stjórn Landsvirkjunar og eðlilega er ákall um að eigendur fyrirtækisins, almenningur, séu upplýstir um þann ágreining sem augljóslega hefur verið á milli lykilstjórnenda og stjórnar.

Rafnar Lárusson fjármálastjóri orkufyrirtækisins til margra ára hefur ákveðið að segja upp starfi sínu.

Óhætt er að segja að það sé mikill skellur fyrir Landsvirkjun að missa jafn mikla reynslu úr fyrirtækinu á svo skömmum tíma. Bæði Rafnar og Hörður hafa yfirburðarþekkingu á viðskiptahlið reksturs Landsvirkjunar og skilja því eftir sig stórt skarð sem erfitt verður fyrir stjórn félagsins að fylla.

Það bíður því stjórnarinnar stórt og vandasamt verkefni við að raða í stöður nýrra lykilstjórnenda þessa mikilvægasta fyrirtækis þjóðarinnar og hún þarf að láta önnur sjónarmið ráða þar för en að leita af silkihúfu sem lætur vel að stjórn.


Millistjórnandinn er nýr vikulegur pistill á Innherja. Millstjórnandinn hefur um áratuga skeið starfað í íslensku atvinnulífi fæstum til gagns og flestum til ama. Hann eygir þó enn von til þess að fá starf hjá hinu opinbera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×