Innlent

Fyrir­tækjum og stofnunum berast sprengju­hótanir

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Íslandsbanki.
Íslandsbanki. vísir/vilhelm

Undanfarna daga hefur fyrirtækjum og stofnunum borist óljósar sprengjuhótanir erlendis frá, þar á meðal er Íslandsbanki. Bankinn lét lögregluna vita umsvifalaust og hefur unnið náið með henni að málinu.

Þetta kemur fram í tölvupósti sem aðgerðastjórn Íslandsbanka sendi starfsfólki í dag. Aðgerðarstjórn bankans hefur verið virkjuð vegna málsins og mun fylgjast áfram með þróun mála í samstarfi við lögreglu.

„Lögreglan hefur metið aðstæður og telur hótunina ótrúverðuga og hættuna ekki raunverulega. Lögregla sér ekki ástæðu til að rýma bankann og starfsemi heldur áfram með eðlilegum hætti,“ segir í póstinum.

Þá er  tekið fram að mikill skilningur sé meðal aðgerðarstjórnar að fréttir sem þessar geti valdið óþægindum. Starfsfólki er boðið að klára daginn heima. Starfsfólki er þakkað fyrir skilninginn og yfirvegun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×