Erlent

Þróa þjónustustöð fyrir tunglið

Samúel Karl Ólason skrifar
Tölvuteiknuð mynd af því hvernig OASIS gæti litið út.
Tölvuteiknuð mynd af því hvernig OASIS gæti litið út. ESA-XR Lab

Á næstu árum er búist við því að geimferðum til tunglsins muni fjölga talsvert. Margar þjóðir og geimvísindastofnanir beina nú augunum þangað og stendur jafnvel til að koma upp varanlegri viðveru á yfirborði tunglsins. Til þess þarf að byggja upp innviði sem auðvelda tunglferðirnar.

Geimvísindastofnun Evrópu (ESA) vinnur að þróun sérstakrar þjónustustöðvar fyrir tunglið, sem ætlað er að styðja við framtíðarverkefni á yfirborði þess. Hún ber nafnið OASIS og á að auðvelda samskipti við jörðina og aðra á tunglinu, auk þess sem hún á að knýja hitakerfi annarra tunglfara og innviða, til að sporna gegn tjóni sökum mikilla hitabreytinga.

Í tilkynningu á vef ESA segir að OASIS gæti gert vísindamönnum kleift að gera út tunglför mun lengur en annars.

Vin í auðninni

Eitt það erfiðasta við tunglferðir er að fá tæki og tól til að lifa nóttina þar af. Á tunglinu stendur nótt yfir í tæpa fimmtán daga og fylgir því gífurlega mikill kuldi sem getur hæglega skemmt óvarinn tækjabúnað. Þá er litlal sólarorku að fá á þessum tíma og því þarf öflugar rafhlöður til að keyra hitabúnað geimfara sem ætlað er að verja rafmagnsbúnað sem er sérkstaklega viðkvæmur fyrir kuldanum.

OASIS er ætlað að leysa þetta vandamál.

Á tungldaginn, þegar nægt sólarljós er að fá, á OASIS að safna orku gegnum sólarsellur og geyma í rafhlöðum. Tunglför geta svo verið látin tengjast þjónustustöðinni á kvöldin, ef svo má segja. Þannig eiga þau að geta fengið orku til að keyra hitabúnað og á einnig að vera hægt að tryggja áframhaldandi samskipti vísindamanna á jörðu niðri við tunglför.

Geimfarinn Harrison Schmitt á yfirborði tunglsins. Þangað fór hann með Apollo 17 árið 1972 en geimfararnir skildu vísindabúnað eftir sem var tengdur einskonar þjónustustöðvum svo gagnaflutningur héldi áfram eftir að þeir sneru aftur til jarðarinnar.NASA

Með þessum hætti á að vera hægt að gera út tunglför lengur en einn tungldag, sem hefur oftar en ekki verið raunin hingað til. Þá er einnig hægt að sleppa við það að senda lendinarför til tunglsins með þungum rafhlöðum og samskiptabúnaði.

Þróun OASIS byggir á Apollo-áætluninni en á sínum tíma skildu geimfarar vísindabúnað eftir á yfirborði tunglsins, tengdan við sérstakar þjónustustöðvar sem tryggðu að búnaðurinn sendi upplýsingar til jarðarinnar eftir að tunglfararnir sneru aftur þangað.

Þróað í Þýskalandi

OASIS er ætlað að geta sent frá sér 75 vött að degi til og 15 vött á nóttinni og á að geta tekið á móti gögnum frá tunglförum, geymt þau og sent til jarðarinnar. Til stendur að flytja þjónustustöðina til tunglsins með Argonaut-lendingarfari og skjóta því út í geim með Ariane 6 eldflaug.

Hvenær þessi þjónustustöð á að vera tilbúin til notkunnar liggur ekki fyrir en þróun hennar er á höndum starfsmanna OHB í Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×