Erlent

Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð

Samúel Karl Ólason skrifar
Maður virðir fyrir sér stæðarinnar holu í íbúðarhverfi Kænugarðs eftir árásir næturinnar.
Maður virðir fyrir sér stæðarinnar holu í íbúðarhverfi Kænugarðs eftir árásir næturinnar. AP/Efrem Lukatsky

Rússar skutu mörgum skotflaugum og flugu fjölda sjálfsprengidróna að Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu í gærkvöldi og í nótt. Að minnsta kosti 21 skotflaug lenti í höfuðborginni í þremur mismunandi bylgjum en samkvæmt Úkraínumönnum bar allavega ein þeirra klasasprengjur, sem hannaðar eru til að dreifa tugum smærri sprengja yfir stórt svæði.

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugarnar hafi lent í nokkrum hverfum Kænugarðs og valdið þar skaða á íbúðarhúsnæði, orkuinnviðum og samgönguinnviðum. Árásir næturinnar hafi einnig náð til ellefu annarra héraða í Úkraínu.

Heimildarmaður Kyiv Independent segir að árásirnar hafi að miklu leyti beinst að orkuinnviðum borgarinnar og þá sérstaklega að spennustöðvum. Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á orkuver Úkraínu, dreifikerfi og aðra innviði eins og hitaveitur.

Forsetinn segir að að minnsta kosti tveir séu látnir eftir nóttina og 34 særðir. Þar á meðal eru fimm börn.

Árásirnar hófust nokkrum klukkustundum eftir að ráðgjafi Vladimírs Pútín sagði blaðamönnum að forsetinn hefði samþykkt að hefja aftur þríhliða viðræður og eftir að Steve Witkoff, sérstakur erindreki Donalds Trump kallaði Pútín „mannvin“.

Sjá einnig: „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“

Flugher Úkraínu segir Rússa hafa notast við ýmsar tegundir eldflauga við árásirnar og um 210 sjálfsprengidróna. Úkraínumenn segjast hafa skotið niður 181 dróna en ekkert er tekið fram um hvort eldflaugar hafi verið skotnar niður.

Úkraínumenn hafa að undanförnu glímt við skort á flugskeytum í loftvarnarkerfi og þá sérstaklega í Patriot-kerfin sem eru svo gott sem einu varnir Úkraínumanna gegn rússneskum skotflaugum. Selenskí hefur sagt að Bandaríkjamenn hafi neitað að senda til Úkraínu flugskeyti sem bakhjarlar Úkraínu hafa fjármagnað gegnum svokallað PURL-verkefni NATO.

Ráðgjafi Selenskís segir að ein skotflaugin sem skotið var að Kænugarði hafi borið klasasprengjuodd. Hann sé hannaður til að dreifa smærri sprengjum yfir um 400x400 metra svæði.

Serhii Beskrestnov, umræddur ráðgjafi, segir að enginn hernaðarlegur tilgangur sé með því að varpa svona sprengjum á elsta hluta Kænugarðs, annar en að valda sem mestu tjóni og skaða sem flesta óbreytta borgara.


Tengdar fréttir

Björguðu særðum hermanni með dróna

Úkraínskir hermenn notuðu á dögunum stóran dróna til að bjarga særðum hermanni af víglínunni. Maðurinn hafði varið nærri því fimm hundruð dögum á víglínunni en hann tilheyrir 30. stórfylki Úkraínuhers. Drónar hafa verið notaðir til að flytja til hans matvæli, vatn og skotfæri en eftir að hann særðist alvarlega var ákveðið að flytja hann á brott.

Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín

Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum.

Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu

Vladimír Pútín hefur lagt til við Donald Trump að þeir og Xi Jinping komi saman í næsta mánuði og ræði hvernig binda eigi enda á stríðið í Úkraínu. Pútín er sagður vilja nýta bætt samband sitt og Trumps og versnandi samband Trumps og Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu. Þessar vendingar hafa leitt til mikilla áhyggja í Evrópu og í Úkraínu, sem munu ekki eiga fulltrúa á fundinum, verði af honum.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur

Donald Trump hefur gert Vladimír Pútín mikla greiða á undanförnum dögum, með því að grafa undan vörnum Úkraínumanna og samstöðu meðal bakhjarla Úkraínu. Þá hefur forsetinn gagnrýnt Vólódímír Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×