Innlent

Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraða­mynda­vélar

Atli Ísleifsson skrifar
Atvikið átti sér stað síðastliðinn föstudag.
Atvikið átti sér stað síðastliðinn föstudag. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á Vesturlandi hefur borið kennsl á mann sem grunaður er um að hafa límt fyrir linsu myndavélar hraðamyndavélabíls lögreglu á Vesturlandsvegi síðastliðinn föstudag. Hætta skapaðist fyrir vegfarendur vegna athæfisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi. Þar segir að átt hafi verið við bílinn sem hún var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi.

„Límt hafði verið yfir linsu myndavélarinnar með þeim afleiðingum að hún gat ekki myndað hraðakstursbrot á meðan.

Slík háttsemi hefur áhrif á umferðareftirlit lögreglu, enda gegna hraðamyndavélar mikilvægu hlutverki við að fylgjast með hraðakstri og stuðla að auknu umferðaröryggi.

Það sem gerir atvikið enn alvarlegra er að við verknaðinn var flutningabifreið stöðvuð á akrein við gatnamót þar sem umferð er jafnan mikil og hröð, með því skapaðist hætta fyrir aðra vegfarendur.

Lögregla hefur borið kennsl á þann sem grunaður er um verknaðinn og er málið til rannsóknar vegna gruns um lögbrot.

Lögreglan á Vesturlandi minnir á að hraðaeftirlit er mikilvægur þáttur í umferðaröryggi og að hvers kyns tálmun á störfum lögreglu getur haft alvarlegar afleiðingar,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×