Fótbolti

Fé­lag Örnu og Fann­eyjar gat ekki borgað laun

Sindri Sverrisson skrifar
Íslensku landsliðskonurnar Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir eru á meðal leikmanna Vålerenga.
Íslensku landsliðskonurnar Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir eru á meðal leikmanna Vålerenga. Getty/Danny de Groot

Leikmenn kvennaliðs Vålerenga í fótbolta hafa flestir ekki fengið greidd laun sín fyrir októbermánuð, samkvæmt frétt norska miðilsins VG.

Tvær íslenskar landsliðskonur eru í leikmannahópi Vålerenga, þær Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir.

Samkvæmt frétt VG fengu aðeins tveir leikmenn liðsins greidd laun á réttum tíma.

„Það er rétt að það fengu ekki allir reidd laun í gær. En við reiknum með því að þetta verði allt klárt á mánudaginn,“ fullyrðir Mia Wedegren, stjórnarformaður Vålerenga, við VG.

Aðspurð hvers vegna það drægist að greiða út laun svaraði hún:

„Það er vegna þess að okkur vantar greiðslur til Vålerenga fótboltafélagsins sem áttu að berast fyrir rúmri viku. Það hefur valdið lausafjárvanda.“

Vålerenga fótboltafélag heldur úti kvennaliði Vålerenga og yngri flokkum svo lausafjárvandinn bitnar ekki á karlaliði Vålerenga sem Kolbeinn Finnsson er á mála hjá.

Samkvæmt frétt VG hefur Vålerenga lengi átt erfitt uppdráttar fjárhagslega og undanfarin fjögur ár verið rekið með halla upp á 15,7 milljónir norskra króna eða yfir 200 milljónir íslenskra króna.

Innan vallar hefur Vålerenga vegnað betur en liðið er í 4. sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 38 stig eftir 20 umferðir af 22.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×