Hent út af skrifstofu ráðherra þegar rætt var um Heiðarfjall
Eigendur jarðarinnar Eiðis á Langanesi hafa í hálfa öld staðið í baráttu fyrir því að mengun eftir herstöðina á Heiðarfjalli verði hreinsuð upp. Á ýmsu hefur gengið, meðal annars varð ráðherra svo reiður vegna erindis þeirra að hann lét henda þeim út af ráðherraskrifstofunni.