Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg
Íslenska landsliðið í handbolta mætir Úkraínu í undankeppni EM í Laugardalshöllinni á miðvikudagskvöldið. Strákarnir okkar eru mættir til landsins og æfðu fyrir hádegi í Safamýrinni. Gísli Þorgeir Kristjánsson er klár í leikinn gegn Úkraínumönnum en viðurkennir að hann viti ekki mikið um liðið.