Læknir ákærður fyrir manndráp
Héraðssaksóknari hefur ákært Skúla Tómas Gunnlaugsson lækni fyrir manndráp af ásetningi í tilfelli eins sjúklings í hans umsjá. Lögregla hafði fimm önnur andlát til skoðunar en felldi málin niður. Skúli Tómas segir ákæruna áfall og kveðst saklaus. Hann hefur verið leystur frá störfum sínum á Landspítalanum.